Skírnir - 01.09.2008, Page 57
SKÍRNIR UM LEIKHÚSMANNINN KAMBAN 331
maðurinn Gunnar Róbertsson Hansen sem var dyggur stuðnings-
maður ekkju Jóhanns Sigurjónssonar og ekki síður Kambans sjálfs.
Eitthvað segir það um tímasetningu allra þessara atburða að Soffía
leikur aðeins í Spanskflugunm snemma hausts 1926 og svo ekki
söguna meir þann vetur, því þá dvaldist hún í Danmörku og naut
leiðsagnar Kambans.
Þó að Kamban væri í raun ekki leikari, mun hann hafa stundað
hefðbundið leiklistar- og framsagnarnám hjá Peter Jerndorff á
þeim árum sem hann gekk í Kaupmannahafnarháskóla 1910-14,
þar sem hann annars las fagurfræði og heimspeki án þess að ljúka
prófi. En hann var rómaður upplesari. Nú ákvað hann að leika
sjálfur Sendiherrann frá Júpíter, sem er risahlutverk, sem og Ernest
í Vér morðingjar á móti Normu Soffíu Guðlaugsdóttur. Þessar
sýningar hlutu báðar afar hlýlegar móttökur og var glæsimennsku
Kambans við brugðið. Meðal annars skrifaði Einar H. Kvaran
hvatningargrein af þessu tilefni og bæjarstjórn samþykkti eftir
einhverja tregðu að styrkja fyrirtækið með 1000 kr. framlagi.56 í
Morgunblaðinu var skrifað að leikur Kambans í þessari frumraun
sinni í Vér morðingjar sé „langtum fremra því sem við eigum hjer
að venjast". Gagnrýnandinn segist geta borið þessa sýningu saman
við frumsýninguna á Dagmarleikhúsinu með Thorkild Roose og
Clöru Pontoppidan og „leikritið sem heild naut sín betur hjer en
þar“. Og Soffía jafnist fyllilega á við Clöru Pontoppidan.57 I leik-
rýni þessari er fátt sparað í hrósinu og virkar hún eilítið eins og
réttlæting og framvísun ófrávíkjanlegrar sönnunar og því innlegg
í „Kambansmálið". Onnur blöð eru þó einnig með lofsamleg um-
mæli. Alþýðublaðið segir t.d. 4. apríl að í sjálfu sér leiki frú Kvaran
og systkinin Borg ekki betur en þau hafi áður gert, en þó sé allt
yfirbragð leiksins fágaðra en við eigum að venjast, betur úthugsað
og betur útfært. Sýningin sé óefað „viðburður í leiksögu lands-
ins“. Þráinn segir í sama blaði að menn hafi spurt sig, hvort leik-
listinni hér væri fengur að komu Kambans hingað. Hann hafi
sjálfur svarað spurningunni, hvílíkur fengur sé að leiðsögn hans.58
56 Sjá Morgunblaðið, 8. apríl 1927.
57 Morgunblaðið, 5. apríl 1927. Greinin var undirrituð N.
58 Alþýðublaðið, 29. apríl 1927.