Skírnir - 01.09.2008, Síða 77
SKÍRNIR
UM LEIKHÚSMANNINN KAMBAN
351
sama leyti var kaup leikstjóra hússins lækkað um þriðjung. Þarf
ekki að koma neinum á óvart að manni með skaplyndi Kambans
hafi þótt sér misboðið. Þess vegna muni hann hafa sagt stöðu sinni
lausri. Viðtökurnar sem skáldsögurnar um Ragnheiði og Brynjólf
höfðu fengið, hafa ýtt undir að hann léti á það reyna að lifa af
ritstörfum einum. Víst er um það að eftir þetta stýrir hann í Dan-
mörku eingöngu frumflutningi eigin verka (sem var réttur sem
hann gat nýtt sér að gamalli hefð á Konunglega leikhúsinu og
reyndar víðar í álfunni).
Þegar hann lét af föstu starfi beið hans nýtt leikstjórnarverk-
efni, og hefur ugglaust verið búið að ganga frá því áður. Þetta var
leikritið Paa Skdlholt, sem höfundur vildi halda fram að væri sjálf-
stætt skáldverk.110 En gagnrýnendur báru það þó sýknt og heilagt
saman við skáldsöguna. Þegar Konunglega leikhúsið frumflutti
Logneren, sjónleik Jóhanns Sigurjónssonar um Mörð Valgarðsson
árið 1917, var flestu tjaldað til. Einn fremsti leikstjóri hússins,
Johannes Nielsen, sem fært hafði Fjalla-Eyvind fram til sigurs
1912, stýrði leiknum og lék Njál, en Hildigunni lék unga stjarna
leikhússins, Ella Ungermann, sem verið hafði Hadda Padda
nokkrum árum áður. Og sjálfur Carl Nielsen var fenginn til að
semja tónlist við leikinn. Ekki verður sagt, að Kamban hafi verið
settar miklu þrengri skorður við uppsetninguna á Paa Skálholt,
enda þótt illa áraði í leikhúsinu, og var Christiansen einmitt að ýja
að því að slík umhyggja hefði nánast verið undantekning eftir að
þeir Kamban hurfu frá leikhúsinu. Kamban leikstýrði sem sagt
sjálfur, Else Skouboe lék Ragnheiði, Johannes Poulsen Brynjólf
biskup, Jonna Neiiendam Helgu í Bræðratungu og Eyvind Johan-
Svendsen Daða; öll í fremstu röð listamanna hússins. Myndir af
sýningunni koma reyndar nútímamönnum nokkuð spánskt fyrir
sjónir, þó að Kamban sjálfur hafi trúlega átt síðasta orðið um allan
umbúning. Gunnlaugur Blöndal listmálari, vinur skáldsins, var
að nýju 1945. Þetta hafði i för með sér, að öll þau leikrit Kambans sem frum-
flutt voru á Konunglega leikhúsinu, voru sýnd á Gamle Scene að Örœfastjörn-
um væntanlega undanteknum.
110 Sjá formálsorð að leiknum í Skálholti, Guðmundur Kamban, Skáldverk VI,
bls. 279.