Skírnir - 01.09.2008, Page 108
382
PÁLL BJARNASON
SKÍRNIR
inga og býður honum að koma austur þegar hann hressist, „því ég
má með engu móti missa þig,“ segir Tómas, sjálfur fárveikur,
reyndist eiga eftir eitt ár ólifað. Tómas skrifar jafnvel enn elsku-
legra bréf í maí 184057 eftir að hafa fengið svarbréf Jónasar þar sem
hann hefur afþakkað boðið um að koma austur.
í því bréfi hefur Tómas á hraðbergi hendingar úr Borðsdlmi
Jónasar sem sunginn var í samsæti fyrir Þorgeir Guðmundsson vorið
áður: „Það er hraparlegt að þeir þar syðra skuli ekki hafa mann-
rænu á að gefa út fréttablað þar sem þó er „svo margt ef að er gáð
sem um er þörf að ræða“.“ Tómas hafði hug á að gefa út nýtt
tímarit hér á landi, eldmóðurinn var enn til staðar en þrekið á þrot-
um og hann treysti mjög á stuðning Jónasar.58
Tómas skrifaði Konráði í júlí 1840,59 og nú er hann allur mild-
ari en fyrr, lætur jafnvel vera að skammast yfir seinagangi í útgáfu
Fjölnis sem ærin ástæða hefði verið til, Tómas hafði þá nýfengið
4. árgang og ræðir töluvert efni ritsins, en það er eftirtektarvert að
hann nefnir ekki Gunnarshólma sem þar birtist. Honum finnst nú
að Jónas eigi að halda sig við Islandslýsinguna og fresta því að
sækja um brauð á meðan. Hann segir ekkert brauð í sínu próf-
astsdæmi nógu gott fyrir Jónas, hann þurfi brauð sem veiti góðar
tekjur „því hann verður aldrei búmaður". Ekkert lát er á umhyggju
Tómasar, en nú er ekki keppt að því að koma Jónasi utan til að
gera hann að „stórum manni“, Tómas vill hafa hann nærri sér, helst
sem prest í sínu eigin prófastsdæmi. Jónas sótti þó tvívegis um
prestsembætti nokkrum mánuðum síðar, að Hólmum í Reyðar-
firði og Breiðabólsstað á Skógarströnd, en fékk ekki.60 Hann hefur
ekki notið þar atbeina Tómasar og líklega ekki beðið um hann.
Sem fyrr segir var Tómas einn um hituna þegar valið var efni í
fimmta árgang Fjölnis 1839. Þar birtust þrjú kvæði, eitt eftir sr.
Guðmund Torfason í Kálfhaga og tvö eftir Bjarna Thorarensen.61
57 Bréf Tómasar Sœmundssonar 1907:258-61 (dags. 12. maí 1840).
58 Um þessar tímaritshugmyndir sjá einkum Lúðvík Kristjánsson 1981:230-242
og Aðalgeir Kristjánsson 2002:231-242.
59 Bréf Tómasar Sœmundssonar 1907:261-73 (dags. 29. júlí 1840).
60 Páll Valsson 1999:274.
61 Kvæði Guðmundar Torfasonar er líklega það sama og Tómas ræðir í bréfi til
Jónasar í apríl 1838 og vill koma að í Fjölni. Hann býst ekki við að Jónasi lítist