Skírnir - 01.09.2008, Page 109
SKÍRNIR
TENGSL JÓNASAR OG TÓMASAR
383
Ekkert kvæði er þar eftir Jónas og er það eini árgangur Fjölnis þar
sem svo er. Áður var getið um dálæti Tómasar á skáldskap Bjarna
og augljóst að hann mat hann meir en skáldskap Jónasar, saman-
ber fálæti hans þegar Gunnarshólmi var annars vegar. Því er engin
furða að Tómas skyldi bjóða Bjarna að birta kvæði í Fjölni, en
velta má fyrir sér ástæðum þess að hann skuli ekki nota tækifærið
til að koma skáldskap Jónasar á framfæri.
Tómas skrifar Jónasi 25. mars 184 1 62 með líkum brag og að
undanförnu. Hann gleðst yfir bréfi frá Jónasi sem hann hefur nán-
ast haft „að daglegri skemmtun síðan“. Þó að feigðargrunur skíni
í gegn er hugurinn enn við útgáfur og ritstörf. Tómas er þakklátur
fyrir það hvað Jónas skrifar vel um ræður hans sem eiga að koma
út með vorinu og endurgeldur Jónasi hrósið með því að skrifa nú
lofsamlega um nýtt kvæði sem fylgt hafði bréfi Jónasar. Það var
Alþing hið nýja63 og Tómas skrifar: „Alþingi þitt er eins og flest
sem þú yrkir, svo af hendi leyst, að varla er mögulegt að ímynda
sér eitt orð, sem betur gæti farið.“ Jónas sýndi Tómasi í sama bréfi
Kveðju og Þökk til Alberts Thorvaldsens (eitt kvæði í tveimur
hlutum) sem Tómas er síður hrifinn af, en það sem hann setur út
á er léttvægt. Jónas bar það kvæði undir Finn Magnússon einu og
hálfu ári fyrr, þá staddur á Akureyri, sagði að hann hefði „svo sem
öngvan hér að bera það undir“.64 Hann hefur þá ekki „þorað“ að
sýna Tómasi kvæðið, en nú horfir öðruvísi við.
Þetta var síðasta bréfið frá Tómasi, hann varð loks að játa sig
sigraðan nokkrum vikum síðar. Hann lést 17. maí 1841, tæplega
34 ára að aldri, og var jarðaður 18 dögum síðar, 4. júní. Tengda-
móðir Tómasar og tvær kornungar dætur hans og Sigríðar létust
um sama leyti og voru því fjögur lík borin til grafar frá Breiða-
bólsstað þann dag.
vel á það en þeir mega breyta því að vild. „Seinustu vísuna gerði hann hér, eftir
mínu undirlagi, og var þá fullur.“ (Bréf Tómasar Sœmundssonar 1907:234).
62 Bréf Tómasar Sxmundssonar 1907:283-290.
63 Ritverk fónasar Hallgrímssonar 1989 1:112-114.
64 Ritverk Jónasar Hallgrímssonar 1989 11:33 (dags. 3. okt. 1839).