Skírnir - 01.09.2008, Page 162
436
ÁSTRÁÐUR OG EYSTEINN
SKÍRNIR
[...] Words strain,
Crack and sometimes break, under the burden,
Under the tension, slip, slide, perish,
Decay with imprecision, will not stay in place,
Will not stay still. [...] (175)
Það er kannski til marks um mikilvægi Eliots í nútímabók-
menntum, og þann sjóð sem hann hefur fært menningarlífi á
alþjóðavísu, að þýðandi sæki sér línur úr miðju erindi eftir hann
og búi sér til sérstakt ljóð úr þeim. Menn kunna að deila um
hugmyndafræði Eliots en ljóst er þó að margir hafa séð í ljóðum
hans átök er varða heimsmynd og lífssýn nútímamanna. Hugsan-
lega láta menn þá reyna á það hversu mjög orð Eliots togna áður
en þau bresta. Þetta hefur meira að segja komið fram í nýlegum
umræðum um umhverfismál og náttúrusýn á Islandi. Haustið
2006 skrifaði Torfi Geirmundsson grein í Morgunblaðið þar sem
hann lýsir þeirri skoðun sinni að rækta beri landið og engin ástæða
sé til að fárast yfir því að „eyðilandi verði eytt“. Hann sækir línur
í Eyðilandið eftir Eliot til stuðnings þeirri skoðun sinni að „við
verðum að nýta landið svo það sé ekki eyðiland.“55
Kári Páll Óskarsson andmælti Torfa á sama vettvangi og taldi
hann hafa „misskilið Eliot hrapalega". Eliot hafi ort ljóðið „vegna
þess að honum fannst hinn vestræni heimur vera orðinn eitt alls-
herjar andlegt eyðiland. Hans listræna sýn á heiminn var sú að öll
andleg gildi hefðu verið fyrir borð borin og eftir stæði einungis
auðnin, sandurinn, efnishyggjan, tómið, dauðinn." Ljóst er að
Kári Páll telur að „virkjunarandstæðingar sem berjast fyrir mál-
stað sem þeim finnst göfugur" eigi meiri samleið með T.S. Eliot en
„virkjunarsinnar sem vilja búa til eyðiland steypu og stáls“.56
13
Ljóst er af framansögðu að þræðir Eliots liggja víða og teygja sig
inn í samtíma okkar við upphaf nýrrar aldar. Viðskipti íslendinga
55 Torfi Geirmundsson: „Eyðilandið", Morgunblaðið 23. september 2006.
56 Kári Páll Óskarsson: „Holir menn“, Morgunblaðið 1. október 2006.