Skírnir - 01.09.2008, Page 164
BERGLIND GUNNARSDÓTTIR
„Hvikull er draumurinn,
þrá mín stolt“
Urn forneskju og módernisma íljóðum
Halldóru B. Björnsson
Halldóra B. Björnsson er ein af okkar merkustu skáldkonum
á 20. öld. Frumort skáldverk hennar eru ekki mörg, hún gaf út
aðeins þrjár ljóðabækur, en breiddin í samanlögðum ritverkum
hennar er mikil. Hún þýðir hið mikla, fornenska kvæði Bjólfs-
kviðu og hún gefur út þýðingar á grænlenskum, afrískum og kín-
verskum ljóðum. Þar er hún frumkvöðull vegna þess að enginn
hafði áður birt þýðingar ljóða frá Afríku og Grænlandi. Bókin
heitir Trumban og lútan, kom út árið 1958 og skipar merkan sess
í bókmenntasögu okkar. Að auki gaf Halldóra út skemmtilega
bók um bernskuna, Eitt er það land, og aðra um forfeður sína á
Hvalfjarðarströnd, sem nefnist Jörð í álögum. Hún birti einnig
greinar og smásögur í blöðum og tímaritum. Og eftir Halldóru
liggur talsvert af óbirtu efni í handritum.
Fleiri systkini Halldóru voru skáldmælt, kunnust þeirra eru
elsti bróðirinn Pétur Beinteinsson,1 yngsti bróðirinn Sveinbjörn
allsherjargoði Beinteinsson og systirin Sigríður á Hávarsstöðum.
Faðir þeirra Beinteinn mun hafa verið hagmæltur, en Snæbjörn
Jónsson bóksali segir að fremur komi skáldgáfa systkinanna kunn-
ugum á óvart, þó nefnir hann að ömmubróðir þeirra, Þorbjörn
Jónsson í Efstabæ, hafi verið listavel skáldmæltur, en hann var líka
ömmubróðir Magnúsar Ásgeirssonar skálds og þýðanda.2
1 Sjá Berglind Gunnarsdóttur 2007.
2 Sjá Snæbjörn Jónsson 1954.
Skírnir, 182. ár (haust 2008)