Skírnir - 01.09.2008, Page 167
SKÍRNIR
HVIKULL ER DRAUMURINN ...
441
sér að því að stela milljónum sér til afþreyingar, á þessum síðustu árum,
hinum snauðu tímum allsnægtanna.7
í lýsingum á Einari og fólkinu í kringum hann, fátæku alþýðufólki
í Borgarfirði á 19. öld, sem gerði hlutina eftir sínu höfði og nýtti
sér hæfileika sína og krafta eftir megni, bregður fyrir einhverju
stórbrotnu sem hefur skilað sér til afkomendanna, barna Beinteins
Einarssonar og Helgu Pétursdóttur. Þau eru flestöll stórhuga í því
sem þau taka sér fyrir hendur, það býr í þeim skapandi kraftur og
hugrekki. Til er ljósmynd af Sigríði á Hávarsstöðum þar sem hún
er nakin á hestbaki eins og náttúruvættur: hálfmennsk, hálfvegis
goðumlík. Myndin er tekin um 1930 og er einkennandi fyrir frum-
leika, styrk og gáfur þessara systkina sem víða skín í gegnum vinnu-
hörku, basl og lítil efni þessa íslenska alþýðufólks á tímum kreppu
og síðan hernáms.8
Pétur var elstur af þessum átta systkinum sem sagan segir að
hafi öll borið við að yrkja, nema ein systirin. En hún hafi ekki
komist hjá því heldur því hún orti vísur í draumi.9 Næstelst var
Halldóra sem fæddist árið 1907 að Litla-Botni, en fljótlega flytur
fjölskyldan að Grafardal sem liggur nokkuð hátt uppi í Botns-
heiði. Grafardalur var ofar öðrum bæjum, en lá nærri þjóðleið úr
Húnavatnssýslu og suður. Þar ólust eldri systkinin upp í víðerni
heiðanna og hafi verið minna um mannaferðir bættu þau það upp
með hugmyndaríkum leikjum og uppátektum.10
Halldóra var veturinn 1927-1928 á Hvítárbakkaskóla, en sá
skóli var mikill ljósberi menningar í Borgarfirði og benti nemend-
um á algerlega nýjar leiðir til lærdóms og þroska. Eftir það lærði
hún að mestu af sjálfri sér og las mikið. Á fyrstu áratugum 20. ald-
ar voru miklir gróskutímar á landinu í andlegum efnum og vakn-
ing sem ekki síst mátti rekja til starfsemi ungmennafélaganna og
tilkomu lestrarfélaga og bókasafna. Og bókstaflega allir voru að
yrkja ljóð á þriðja áratugnum.
7 Sama rit:81—83.
8 Sjá Berglind Gunnarsdóttur 1992.
9 Jón Helgason 1969:5.
10 Sjá Halldóru B. Björnsson 1955.