Skírnir - 01.09.2008, Síða 214
488
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
SKÍRNIR
aði við Shell, Unilever og Alusuisse mörgum áratugum áður en Stefán
Snævarr tók til máls um stórfyrirtækin.
Ef til vill skiptir minnstu máli, hvað menntamenn segja um kapítalism-
ann. Þrátt fyrir allt þeirra tal þoka framtakssamir menn lífskjörunum
fram á hverjum degi. Á meðan Halldór Kiljan Laxness og Þórbergur
Þórðarson skröfuðu um það á kaffihúsum á þriðja áratug tuttugustu
aldar, að bægja þyrfti myrkri og kulda burt úr húsakynnum íslenskrar al-
þýðu, sat Jón Þorláksson á verkfræðistofu sinni og teiknaði rafmagnsveit-
ur til að útrýma myrkrinu og hitaveitur til að útrýma kuldanum. Á með-
an Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gíslason héldu hrókaræður á
sjöunda áratug um, að bæta þyrfti hag almennings, fann Pálmi Jónsson í
Hagkaup leiðir til að lækka vöruverð, svo að kjör venjulegs fólks bötnuðu
meira en við áratuga kjarabaráttu. í frelsinu býr feikilegur sköpunarmáttur,
og við getum leyft okkur að vona með Hegel, að einn góðan veðurdag
verði það sameign alls mannkyns.
Heimildir
Hannes H. Gissurarson. 1992. Frjálshyggjan er mannúðarstefna. Reykjavík: Stofnun
Jóns Þorlákssonar.
Hannes H. Gissurarson. 2001. Hvernig getur Island orðið ríkasta land í heimii
Reykjavík: Nýja bókafélagið.
Hannes H. Gissurarson og Tryggvi Þór Herbertsson (ritstj.). 2007. Cutting taxes
to increase prosperity. Reykjavík: RSE.
Hegel, G.W.F. 1830. Vorlesungen úher die Philosophie der Weltgeschichte.
Locke, John. 1689. Ritgerð um ríkisvald.
Páll Skúlason. 2008. Menning og markaðshyggja. Skírnir 182, 5-40.
Schumpeter, Joseph. 1942. Capitalism, socialism, and democracy.
Sigurður Nordal. 1957. Er ríkið óvinurinn? Morgunblaðið, 6. janúar.
Stefán Snævarr. 2008. Job og Jón hagi. Skírnir 182, 213-221.
Smith, Adam. 1776. Auðlegð þjóðanna.
Þorvaldur Gylfason. 2007. Evrópa: Minni vinna, meiri vöxtur. Skírnir 181, 61-81.