Skírnir - 01.09.2008, Síða 217
SKÍRNIR ÆTLAR LINKINDIN ALDREI AÐ LÍÐA HJÁ? 49J
Alougalaust ákæruvald
Vandinn var samt ekki einkavæðingin, þótt sumir haldi því nú fram með
sigurbros á vör. Nei, einkavæðing bankanna var nauðsynleg í ljósi reynsl-
unnar og löngu tímabær. Andstaða gegn einkavæðingu bankanna vitnaði
um djúpstætt skilningsleysi á ábyrgð gömlu ríkisbankanna á margvíslegri
óhagkvæmni í efnahagslífinu og mikilli verðbólgu og skuldasöfnun af
völdum þessarar óhagkvæmni. Vandinn var útfærslan (og þá gildir einu,
að gamlir marxistar halda því sumir fram, að kommúnismi sé góð og gild
samfélagsskipan og útfærslan á honum hafi mistekizt). Ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins hætti við dreift eignarhald að
nýjum einkabönkum og hætti einnig við að laða erlenda banka til að hefja
rekstur á íslandi eins og til stóð í byrjun. Hún stóðst ekki slímaða freist-
inguna að selja Búnaðarbankann og Landsbankann á undirverði mönn-
um, sem höfðu aldrei komið nálægt bankarekstri, en höfðu þeim mun
betra samband — talsamband eins og það heitir — við stjórnarflokkana
tvo. Uppljóstrun Styrmis Gunnarssonar ritstjóra Morgunblaðsins í prent-
aðri ritgerð um talsambandið við Sjálfstæðisflokkinn er umhugsunarverð
í ljósi þess, að Kjartan Gunnarsson varaformaður bankaráðs Landsbank-
ans lýsti því í viðtali við Séð og heyrt eða hvar það nú var, að honum fynd-
ist gott að þegja með Davíð Oddssyni vini sínum, forsætisráðherra og
formanni Sjálfstæðisflokksins. Þau ummæli eru athyglisverð vegna þess,
að fyrir liggja skriflegar heimildir um sameiginlega aðför þeirra tveggja að
viðskiptavini Landsbankans, þessum sama ritstjóra, sem þeir vinirnir hót-
uðu að gera gjaldþrota til að þagga niður í honum eða í hefndarskyni. Að-
för tvímenninganna að ritstjóranum er skýlaust lögbrot, en ríkissaksókn-
ari hefur ekki séð ástæðu til að athuga málið þrátt fyrir birtar frásagnir
af því, til dæmis í grein Jóhanns Haukssonar blaðamanns í Mannlífi.
Ákæruvaldið virðist stundum taka Sjálfstæðisflokkinn fram yfir lög og
rétt.
Til marks um áhugaleysi ákæruvaldsins má einnig hafa þá staðreynd,
að Sverrir Hermannsson fyrrum Landsbankastjóri Sjálfstæðisflokksins
hefur í Morgunhlaðinu margsinnis borið þungar sakir á Kjartan Gunnars-
son, fyrrum bankaráðsmann í Landsbankanum, og Finn Ingólfsson,
fyrrum bankaráðsmann í Kaupþingi, en hvorki ritstjórn Morgunhlaðsins
né ákæruvaldinu þótti ástæða til að kanna sannleiksgildið í ásökunum
Sverris. Allt þetta þarf nú að rannsaka innan um þau afbrot, sem virðast
hafa verið framin í bönkunum síðustu ár. Meira um það á eftir. Margir
vöruðu við hættunni, sem í því fólst að setja bankana í hendurnar á