Skírnir - 01.09.2008, Page 254
528
GUNNAR J. ÁRNASON
SKÍRNIR
sýningar af þessu tagi sem byggjast að miklu leyti á samskiptum
við almenning, og þar má nefna verkefni sem hann setti á laggirnar
í tengslum við listahátíð í Finnlandi árið 1997 og kallaði
„Draumaskrifstofan". Hann fékk aðstöðu í skrifstofuhúsnæði í
miðborg Helsinki þar sem fólk gat komið inn af götunni og fengið
að tala við ráðgjafa sem reyndu að veita aðstoð við að gera drauma
þess að veruleika. Draumarnir og þær ráðleggingar sem fólkið
fékk voru skráðar, t.d. hvar það gat fengið faglega aðstoð, komist
í kynni við annað fólk með svipaða drauma eða leitað eftir
fjármagni til framkvæmda. Skrifstofan gekk svo vel að það voru
meira að segja uppi áform um að halda starfseminni áfram eftir að
sýningartímanum lauk. Fleiri dæmi af þessu tagi mætti nefna, m.a.
sýningu Ólafs S. Gíslasonar í Gallerí i8 árið 1998 þar sem hann
sýndi hluti sem fólk hafði unnið í samstarfi við Ólaf fyrir sýning-
una. Á sýningu Ólafs Elíassonar, „Frost Activity", í Hafnarhús-
inu árið 2004, sýndi hann svokallað módelherbergi með ýmiss
konar líkönum og frumgerðum sem hann hafði unnið í samstarfi
við arkitekta og vísindamenn. í næsta sal við hliðina hafði hann
sett upp leikherbergi þar sem almenningur gat spreytt sig á því að
smíða eigin líkön úr sérsmíðuðum leikföngum. Ef við færum svo
út í sögulegan samanburð þá má kannski líta á Magnús Pálsson
sem fyrirrennara þátttökulistar, t.d. með verkefnum sem hann
vann með listnemum og kallaði „Kennsla, geggjaðasta listgreinin",
og þau ýmsu hljóðverk og gjörninga sem hann vann með lista-
mönnum úr öðrum listgreinum og með þátttöku áhugafólks og
almennings, meðal annars í Mob-shop listahópnum.
Hér að framan var varpað fram þeim spurningum hverju listin
fengi áorkað frammi fyrir hinu pólitíska sviði og rætt hefur verið
um ýmsa möguleika sem listamenn hafa staðið frammi fyrir og
þær leiðir sem farnar eru í því sem hér hefur verið kallað þátt-
tökulist. Ef þátttökulist reynir að áorka einhverju felst það í því að
breyta sambandinu milli listamannsins og áhorfandans í víðum
skilningi þess orðs. Samband listamanns og áhorfanda á sér hlið-
stæður í sambandinu milli kennara og nemenda, prests og sóknar-
barns, sölumanns og kaupanda eða pólitísks frambjóðanda og kjós-
anda. Þátttökulist býður ekki upp á neina kennslu, enga predikun,