Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 16
Í vaktavinnu verður vinnuvikan stytt að lágmarki um fjórar
klukkustundir, en að hámarki um átta klukkustundir miðað
við fullt starf hjá þeim sem vinna mikla vaktabyrði. Með þessu
er stigið stórt skref í átt að kröfu hjúkrunarfræðinga — sem og
fjölmargra annarra vaktavinnustétta — að 80 prósent vinna í
vaktavinnu jafngildi 100 prósenta vinnu í dagvinnu. Breyt-
ingin fyrir vaktavinnufólk krefst meiri undirbúnings og flókn-
ari samtala á vinnustöðum en breytingarnar fyrir dagvinnu-
fólk og því tekur hún ekki gildi fyrr en 1. maí næstkomandi.
rannsóknir á vaktavinnu hafa leitt í ljós ýmsar neikvæðar af-
leiðingar sem geta hlotist af vaktavinnu, einkum á heilsu starfs-
fólks, öryggi starfsfólksins sjálfs og þeirrar þjónustu sem það
veitir. Vaktavinnufólk er jafnframt talið í meiri hættu á að fá
ýmsa sjúkdóma, t.a.m. getur vinna á mismunandi tímum sól-
arhringsins haft slæm áhrif á svefn fólks og það hefur síðan
áhrif á heilsu þess. Vinna á óreglulegum tímum sólarhringsins
gerir fólki einnig erfiðara fyrir að eiga eðlilegt líf utan vinnu-
tíma. Breytingarnar, sem nú eru að verða að veruleika, eru
gerðar með það að leiðarljósi að bæta heilsu, öryggi og auka
jafnvægi milli vinnu og einkalífs starfsfólks, ásamt öryggi
skjólstæðinga þess. Með breytingunum verður vaktavinna von-
andi eftirsóknarverðari og er breytingunum einnig ætlað að
auka stöðugleika í mönnun hjá stofnunum ríkis og sveitar-
félaga, sem og bæta öryggi og þjónustu við almenning.
Nýtt fyrirkomulag vaktavinnu
kerfisbreytingin felur í sér að greiðslur fyrir vinnutíma vakta-
vinnufólks og þ.m.t. hjúkrunarfræðinga verða sanngjarnari og
taka þá mið af því hvenær sólarhrings er unnið með tilliti til
heilsu og öryggis starfsfólks. Tilkoma nýs vaktavinnukerfis
mun fyrst og fremst umbuna þeim hjúkrunarfræðingum sem
eru í háu starfshlutfalli og hafa þunga vaktabyrði. Í undirbún-
ingnum og samningaviðræðum um nýtt kerfi voru yfir 300
starfshópar mátaðir inn í kerfið og niðurstaðan var sú að með
nýju kerfi er verið að umbuna mest fyrir fjölda skipta sem
mætt er í vinnu og mikla vaktabyrði utan dagvinnutíma.
fyrir hjúkrunarfræðinga í 100 prósent starfi, með þyngstu
vaktabyrðina og fjölbreyttustu vaktirnar, mun vinnustundum
fækka úr 173,3 klukkustundum á mánuði allt niður í 139
klukkustundir. Mánaðarleg stytting getur því orðið rúmlega
34 klukkustundir hjá hjúkrunarfræðingum frá því sem nú er.
um það bil 70 prósent alls vaktavinnufólks, sem starfar hjá
ríkinu, er í hlutastarfi. um 80-85% allra hjúkrunarfræðinga
starfa í hlutastarfi og því hafa þessar breytingar gífurleg áhrif
á vinnuumhverfi stéttarinnar. hjúkrunarfræðingar, sem hafa
fram að þessu valið að vera í hlutastarfi, geta því eftir breyt-
ingarnar unnið áfram jafnmargar klukkustundir. Við það eykst
starfshlutfallið og þar með hækka launin. Tæplega 80 prósent
vaktavinnufólks, sem starfa hjá hinu opinbera, eru konur í
heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Þær eru líklegri til að velja
sér hlutastörf og er því augljóst að um tímabæra og mikilvæga
jafnréttisaðgerð er um að ræða, sérstaklega fyrir stétt eins og
hjúkrunarfræðinga þar sem 97% þeirra eru konur.
Kostnaður tryggður vegna
styttri vinnuviku
Á mörgum vinnustöðum hjúkrunarfræðinga þarf að manna
vaktir hluta úr sólarhring eða allan sólarhringinn og er ljóst
að styttingin mun kalla á aukin útgjöld frá launagreiðendum.
Það hefur legið ljóst fyrir frá upphafi og var gert ráð fyrir því
í kostnaðarmati kjarasamningsins líkt og hjá öðrum stéttum.
kerfisbreytingin er slík að þau verðmæti sem þegar voru inni
16 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Stytting vinnuvikunnar
Harpa Júlía Sævarsdóttir, Guðbjörg Pálsdóttir og Eva Hjörtína Ólafsdóttir tóku saman
Mikilvægum áfanga var náð í kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vorið 2020
þegar samið var um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar. Um er að ræða stórt fram-
faraskref í kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga. Útfærslan á styttingu vinnuvikunnar verður ólík
hjá hjúkrunarfræðingum í dagvinnu og þeim sem starfa í vaktavinnu en innleiðingu á dag-
vinnustöðum lauk um síðustu áramót.
Vinna á óreglulegum tímum sólarhringsins
gerir fólki einnig erfiðara fyrir að eiga eðlilegt
líf utan vinnutíma. Breytingarnar, sem nú eru
að verða að veruleika, eru gerðar með það að
leiðarljósi að bæta heilsu, öryggi og auka jafn-
vægi milli vinnu og einkalífs starfsfólks, ásamt
öryggi skjólstæðinga þess.