Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 38
Þegar sex ára dóttir mín var flutt með sjúkrabíl á great Ormond Street-barnaspítal-
ann í London með sprunginn botnlanga áttum við fjölskyldan ekki von á öðru en
að við yrðum komin aftur heim eftir nokkra daga. raunin varð önnur. Í kjölfar fylgi-
kvilla og sýkinga eftir skurðaðgerð ílentumst við á spítalanum. Í hátt á þriðju viku
dvöldum við innilokuð í ókunnugri spítalaveröld í móki óvissu og ótta. En þrátt fyrir
það sá ég tilveruna skýrar en nokkru sinni fyrr.
Tilgangur lífsins var ekki vistaður í tölvunni; tékklistar voru ekki hreyfiafl jarðar;
eftirsókn eftir vindi gerði ekki annað en að rugla hárgreiðslunni. En röntgensjónin
risti dýpra en undir yfirborð eigin nafla. Þar sem ég sat við rúmstokk dóttur minnar
fylgdist ég vanmáttug með hjúkrunarfræðingum og öðru starfsfólki spítalans bregða
sér í líki bjargvætta, skemmtikrafta, sálusorgara og allsherjarreddara. Lamandi upp-
götvun sló mig: Við sem samfélag erum á algjörum villigötum.
Þegar við mæðgur gengum loks út af spítalanum sólríkan vetrardag í London
taldi ég mig eina um opinberunina. En örlögin höguðu því svo að brátt yrði lexían
allri heimsbyggðinni ljós.
Eindálkur á innsíðum dagblaða
haft er eftir Oscari Wilde að sú sé kaldlynd manneskja sem veit verðið á öllu en virði
einskis. Samfélag okkar er orðið þessi kaldlynda manneskja. æ oftar trompar verð
virði. Óttinn við slíkt kaldlyndi breiðist hratt út.
Í metsölubók lögfræðingsins Michaels Sandel, What Money Can’t Buy: The Moral
Limits of Markets, færir höfundur rök fyrir því að við búum ekki lengur við markaðs -
hagkerfi heldur lifum við í markaðssamfélagi. Stjörnuhagfræðingurinn Mari ana Mazzu -
cato segir hagkerfi heimsins í kreppu. Ástæðan: Við erum hætt að ræða um það sem
eitt sinn var þungamiðja hagfræð innar, virði — hvað er virði og hvað er það sem er
okkur einhvers virði? Meira að segja fyrrverandi bankastjóri Englandsbanka, seðla-
banka Bretlands, er sammála. Í desember síðasliðnum hlaut Mark Carney þann
heiður að flytja reith-fyrirlestrana, árlega fyrirlestraröð breska ríkisútvarpsins, þar
sem fremstu hugsuðum samtímans er boðið að tala. Í fjórum fyrirlestrum rökstuddi
Carney að samfélag okkar hefði villst af leið; við værum farin að leggja of mikla
áherslu á fjárhagslegt virði vöru og þjónustu og of litla áherslu á siðferðilegt og sam-
félagslegt virði.
fyrir ári, þegar ég sat við sjúkrabeð dóttur minnar, las ég frétt um nýja veiru sem
hefði fundist í kína. Við upphaf 2020 var kórónuveiran aðeins eindálkur á innsíðum
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Verð er ekki það sama og virði
Sif Sigmarsdóttir
Janúar 2020. Ég sit inni í sjúkrabíl sem ekur með blikkandi ljós og vælandi sírenur eftir götum
Lundúna. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem inn í slíkan bíl. Vera mín í bílnum vekur með mér
furðu. Einhvern veginn hafði ég staðið í þeirri trú að sjúkrabílar væru fyrir annað fólk. Klukku-
stund fyrr hafði ég setið við tölvuna í vinnunni með tíu metra langan tossalista eins og snöru
um hálsinn við afgreiðslu verkefna sem ég áleit kraftinn sem tryggði að jörðin snerist um möndul
sinn, heltekin af tölvupóst-innhólfinu þar sem sendingar flugu fram og til baka af jafnmiklum
ofsa og boltar í úrslitaleik á Wimbledon. En krísur gera okkur gjarnan kleift að sjá hvað það er
sem raunverulega skiptir máli.
Sif Sigmarsdóttir.