Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 83
þeirra er með HIV og meira en helmingur er með lifrarbólgu
C (Fíkniefna- og sakamálastofunun Sameinuðu þjóðanna,
2017). Húðsýkingar eru tíðar meðal þeirra (Dahlman o.fl.,
2015) og það sama má segja um aðrar bakteríusýkingar, eins
og sýkingar í hjartalokum (Rosenthal o.fl., 2016). Samfara auk-
inni notkun vímuefna ölgar þeim sem hljóta refsidóma.
Rann sóknarniðurstöður frá Bandaríkjunum, Kanada og Evr-
ópu sýna að 60% handtekinna einstaklinga reyndust við skim -
un jákvæðir út af að minnstu kosti einni gerð vímuefna við
handtöku (Fíkniefna- og sakamálastofnun Sameinuðu þjóð -
anna, 2018). Staðan er svipuð í Svíþjóð en þar er talið að um
70% þeirra sem afplána refsidóma eigi við áfengis- og annan
vímuefnavanda að stríða (Mannerfelt og Håkansson, 2018).
Konur og fangelsi
Hlutfall kvenfanga fer hækkandi í heiminum. Talið er að um
600 þúsund konur hafi verið í fangelsi árið 2012 (Strathdee
o.fl., 2015). Í Bandaríkjunum eru kvenfangar um sjö prósent
þeirra sem afplána refsidóm og hefur hlutfallið aukist um
700% á milli áranna 1984 og 2014 (Mannerfelt og Håkansson,
2018).
Kvenfangar sem hafa orðið fyrir áfalli í æsku eru í aukinni
hættu á streitu, vanlíðan og lélegra heilsufarsástandi. Þessum
föngum er jafnframt hættara við að verða fyrir geðröskun,
vímuefnavanda, átröskun og lenda í kynlífsvinnu (De Hart
o.fl., 2014; McCauley o.fl., 2019; Moloney o.fl., 2009). Í yfirlits-
grein Karlsson og Zielenski (2018), þar sem teknar voru saman
42 rannsóknargreinar um kynferðislegt oeldi og geðröskun
meðal kvenfanga, kemur fram að engin rannsókn hafi verið
gerð á því hversu vel staðlaðir matskvarðar ná utan um alvar-
leika þess, og hversu langvarandi kynferðislegt oeldi er gagn-
vart konum sem hafa afplánað refsidóm. Í ljósi þess hversu
algengt er að kvenfangar séu þolendur kynferðislegs oeldis
hafa sumir rannsakendur gengið svo langt að álykta að kyn-
ferðislegt oeldi geti varðað leið kvenna í fangelsi (Karlsson
og Zielenski, 2018).
Í ljósi ólíks reynsluheims karla og kvenna eru þarfir þeirra
ólíkar þegar kemur að vímuefnameðferð, bæði innan og utan
fangelsis. Það er því mikilvægt að litið sé heildrænt á þarfir
kvenfanga og að konur í afplánun fái meðferð við vímuefna-
vanda sínum og tækifæri til að vinna úr fyrri áföllum (Fazel
o.fl., 2016; Mejía o.fl., 2015; Mollard og Hudson, 2016).
Rannsakendur fundu engar íslenskar rannsóknir um
reynslu kvenfanga af meðferðarúrræðum innan og utan fang-
elsis. Kvenföngum hefur ekki verið gefinn mikill gaumur og
samræmist það rannsóknum erlendis frá. Fáar rannsóknar-
greinar eru til um sértæka meðferð fyrir konur í fangelsum og
beinast rannsóknir, sem til eru, iðulega að karlföngum eða
blönduðum hópum (Zlotnick o.fl., 2003).
Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynsluheim
kvenna í íslensku fangelsi og reynslu þeirra af meðferðar -
úrræðum innan og utan fangelsis. Er þá vonin að hægt verði
að bjóða upp á frekari úrræði og jafnvel hvetja til viðameiri
rannsókna á þessu sviði. Rannsóknarspurningin var: Hver er
reynsluheimur kvenfanga í íslensku fangelsi og hver er reynsla
þeirra af meðferðarúrræðum innan og utan fangelsis?
Aðferð
Eigindleg rannsóknaraðferð, Vancouver-skólinn í fyrirbæra -
fræði, var notuð til að svara rannsóknarspurningunni. Mark -
mið hans er að auka skilning á mannlegum fyrirbærum í þeim
tilgangi að bæta mannlega þjónustu (Sigríður Halldórsdóttir,
2016). Fyrirbærafræði hentar vel þegar rannsaka á jaðarhópa,
en einstaklingar sem nota vímuefni og stunda refsiverða hátt-
semi geta talist jaðarsettir (Lintonen o.fl., 2012; Rognli o.fl.,
2015). Litið var á þátttakendur sem með rann sakendur og þess
gætt í hvívetna að sýna þeim nærgætni og virðingu samkvæmt
hugmyndafræði Vancouver-skólans.
Gagnasöfnun og greining gagna
Tólf þrepa rannsóknarferli Vancouver-skólans er eitt af megin-
einkennum hans (sjá töflu 1 á næstu síðu). Á meðan unnið er
að rannsókninni er farið í gegnum sjö vitræna ferla Vancouver-
skólans í öllum 12 þrepunum: Að vera kyrr, að ígrunda, að
koma auga á, að velja, að túlka, að raða saman, og að sann-
reyna (sjá mynd 1).
Þátttakendur
Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki og snjóboltaúr-
taki. Skilyrði fyrir tilgangsúrtaki er að þátttakendur hafi reynslu
af því sem á að rannsaka. Með snjóboltaúrtaki benda þátttak-
endur á aðra hugsanlega þátttakendur, með sömu reynslu.
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 83
Mynd 1. Vitrænn vinnuferill Vancouver-skólans í fyrirbæra -
fræði
1. Að vera kyrr
2. Að ígrunda
4. Að velja
5. Að túlka
6. Að raða
saman
7. Að
sannreyna
3. Að koma
auga á