Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 27
ósk, ekki síst vegna erlendu hjúkrunarfræðinganna sjálfra, en
einnig vegna samstarfsfólks þeirra og stjórnenda. Sett var af stað
verkefni innan menntadeildar sem hafði það að markmiði að
• Skýra og samræma verklag við ráðningu og móttöku
erlendra hjúkrunarfræðinga
• jafna aðstöðumun erlendra og íslenskra hjúkrunar-
fræðinga hvað varðar starfsþróun
• Tryggja móttöku og aðlögun við hæfi, byggða á þekk-
ingu og reynslu
• flýta aðlögun að starfi á Landspítala
• auka hæfni erlendra hjúkrunarfræðinga til að takast á
við það sem reynir á í starfinu við nýjar aðstæður
• auka öryggi sjúklinga og starfsmanna, bæta gæði þjón-
ustu, auka starfsánægju og festu
Starfsþróun erlendra hjúkrunar-
fræðinga
auk íslenskunámskeiða, sem erlendum hjúkrunarfræðingum
standa til boða, er starfsþróun erlendra hjúkrunarfræðinga nú
tvíþætt. annars vegar hefur verið boðið upp á námskeið eða
þjálfun fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga sem hafa starfað hér
í meira en 1–2 ár, hafa reynslu af starfi innan Landspítala og
hafa náð nokkrum tökum á íslensku. Þeim er boðið upp á
nám skeið þar sem töluð er íslenska, en farið hægar yfir og
enska notuð til útskýringar eftir þörfum. Markmið námskeið -
anna er að erlendir hjúkrunarfræðingar fái tækifæri til að tala
um hjúkrun og þjónustu við sjúklinga á íslensku. innihaldi
starfsþróunarinnar svipar til þess sem er í boði fyrir íslenska
hjúkrunarfræðinga, en einnig var haft samráð við er lenda
hjúkrunarfræðinga um val á efni og efnisþáttum. Þá standa
þeim einnig til boða rafræn námskeið á ensku.
Í janúar 2020 hófst starfsþróunarár fyrir hóp erlendra hjúkr-
unarfræðinga sem höfðu starfað á Landspítala innan við ár.
kennt var á ensku. Markmið starfsþróunarársins var að auka
öryggi þeirra í starfi og leggja grunn að farsælum starfsferli. Á
þessu fyrsta starfsþróunarári fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga
voru skráðir 40 þátttakendur. Í heildina var starfsþróunarárið
sjö fræðsludagar sem dreifðust yfir árið og lauk í janúar 2021.
fræðslan á starfsþróunarárinu fólst í fyrirlestrum, kennslu á
rafræn kerfi spítalans, handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga,
jafningjastuðningi og færniþjálfun. innihald starfþróunarárs
fyrir nýútskrifaða íslenska hjúkrunarfræðinga var haft til
hliðsjónar auk þess sem haft var samráð við deildarstjóra og
erlendu hjúkrunarfræðingana sjálfa um hvaða efni væri mest
þörf fyrir. Ólíkt íslenskum hjúkrunarfræðingum á starfsþró-
unarári eru erlendir hjúkrunarfræðingar sem hingað koma
með mismikla starfsreynslu og ólíkt grunnnám. Taka þarf tillit
til þess þegar innihald fræðslu og þjálfunar er ákveðið. Í lok
hvers starfsþróunardags voru þátttakendur beðnir um að meta
daginn, kennsluaðferðir og gefa ábendingar um hvað mætti
betur fara ásamt því að benda á hvaða fræðslu eða þjálfun þeir
töldu sig hafa mest gagn af. Þannig var hægt að sníða starfsþró-
unarárið að þátttakendum.
Ásamt þeim markmiðum sem áður er getið er eitt af mark -
miðum starfsþróunarárs erlendra hjúkrunarfræðinga að tengja
hópinn saman, en rannsóknir hafa sýnt að jafningastuðningur
er mikilvægur þegar verið er að taka fyrstu skrefin á nýjum
vinnustað. Á starfsþróunarárinu voru allir hjúkrunarfræðing-
arnir í stuðningshópum sem var stýrt af reyndum íslenskum
hjúkrunarfræðingum sem allir höfðu reynslu af því að flytjast
búferlum og starfa sem hjúkrunarfræðingur í öðru landi. kostir
þess að hafa stuðningshópa líkt og þessa eru að hjúkrunar-
fræðingar fá rými til þess að deila sinni reynslu með öðrum
sem eru að kljást við svipaða reynslu.
Í heildina kom starfsþróunarárið vel út og voru þátttak-
endur sammála um að starfsþróunarárið hjálpaði þeim að tak -
ast á við starfið, jók starfsánægju, kynnti þeim betur starfsemi
spítalans ásamt því að hvetja til frekari starfsþróunar í hjúkrun.
Deildarstjórar lýsti einnig ánægju sinni með þetta fyrirkomu-
lag. nú í febrúar hófst nýtt starfsþróunarár fyrir nýlega ráðna
erlenda hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Þátttakendur eru
liðlega tuttugu. Skipulag og innihald þess byggist að miklu leyti
á fyrra starfsþróunarári og niðurstöðum úr könnun meðal
þátttakenda á fyrra starfsþróunarári.
niðurstaða okkar á Landspítala er að starfsþróun eins og
hér er lýst, sem er sérsniðin að fræðsluþörfum hjúkrunarfræð-
inga sem hingað koma til starfa, sé forsenda farsæls starfs og
samvinnu við íslenskumælandi hjúkrunarfræðinga og sjúk-
linga. Það er enn fremur mikilvægt að veita formlegan stuðn -
ing og hvatningu, bæði miðlægt og á deildinni sem við kom-
andi starfar á. Við treystum því að hjúkrunarfræðingar taki vel
á móti erlendum hjúkrunarfræðingum, aðstoði þá við að kom-
ast inn í starfið og sýni þeim tillitssemi og sanngirni fyrstu
mánuðina í starfi. Það er trú okkar að til framtíðar muni störf
þeirra hér auðga og efla hjúkrun á Íslandi.
móttaka og starfsþróun hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna á landspítala
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 27
Markmið starfsþróunarársins var að auka ör-
yggi þeirra í starfi og leggja grunn að farsælum
starfsferli. … Ólíkt íslenskum hjúkrunarfræð-
ingum á starfsþróunarári eru erlendir hjúkr-
unarfræðingar sem hingað koma með mismikla
starfsreynslu og ólíkt grunnnám.
Á starfsþróunarárinu voru allir hjúkrunarfræð -
ingarnir í stuðningshópum sem var stýrt af
reyndum íslenskum hjúkrunarfræðingum sem
allir höfðu reynslu af því að flytjast búferlum og
starfa sem hjúkrunarfræðingur í öðru landi.