Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 27
ósk, ekki síst vegna erlendu hjúkrunarfræðinganna sjálfra, en einnig vegna samstarfsfólks þeirra og stjórnenda. Sett var af stað verkefni innan menntadeildar sem hafði það að markmiði að • Skýra og samræma verklag við ráðningu og móttöku erlendra hjúkrunarfræðinga • jafna aðstöðumun erlendra og íslenskra hjúkrunar- fræðinga hvað varðar starfsþróun • Tryggja móttöku og aðlögun við hæfi, byggða á þekk- ingu og reynslu • flýta aðlögun að starfi á Landspítala • auka hæfni erlendra hjúkrunarfræðinga til að takast á við það sem reynir á í starfinu við nýjar aðstæður • auka öryggi sjúklinga og starfsmanna, bæta gæði þjón- ustu, auka starfsánægju og festu Starfsþróun erlendra hjúkrunar- fræðinga auk íslenskunámskeiða, sem erlendum hjúkrunarfræðingum standa til boða, er starfsþróun erlendra hjúkrunarfræðinga nú tvíþætt. annars vegar hefur verið boðið upp á námskeið eða þjálfun fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga sem hafa starfað hér í meira en 1–2 ár, hafa reynslu af starfi innan Landspítala og hafa náð nokkrum tökum á íslensku. Þeim er boðið upp á nám skeið þar sem töluð er íslenska, en farið hægar yfir og enska notuð til útskýringar eftir þörfum. Markmið námskeið - anna er að erlendir hjúkrunarfræðingar fái tækifæri til að tala um hjúkrun og þjónustu við sjúklinga á íslensku. innihaldi starfsþróunarinnar svipar til þess sem er í boði fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga, en einnig var haft samráð við er lenda hjúkrunarfræðinga um val á efni og efnisþáttum. Þá standa þeim einnig til boða rafræn námskeið á ensku. Í janúar 2020 hófst starfsþróunarár fyrir hóp erlendra hjúkr- unarfræðinga sem höfðu starfað á Landspítala innan við ár. kennt var á ensku. Markmið starfsþróunarársins var að auka öryggi þeirra í starfi og leggja grunn að farsælum starfsferli. Á þessu fyrsta starfsþróunarári fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga voru skráðir 40 þátttakendur. Í heildina var starfsþróunarárið sjö fræðsludagar sem dreifðust yfir árið og lauk í janúar 2021. fræðslan á starfsþróunarárinu fólst í fyrirlestrum, kennslu á rafræn kerfi spítalans, handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga, jafningjastuðningi og færniþjálfun. innihald starfþróunarárs fyrir nýútskrifaða íslenska hjúkrunarfræðinga var haft til hliðsjónar auk þess sem haft var samráð við deildarstjóra og erlendu hjúkrunarfræðingana sjálfa um hvaða efni væri mest þörf fyrir. Ólíkt íslenskum hjúkrunarfræðingum á starfsþró- unarári eru erlendir hjúkrunarfræðingar sem hingað koma með mismikla starfsreynslu og ólíkt grunnnám. Taka þarf tillit til þess þegar innihald fræðslu og þjálfunar er ákveðið. Í lok hvers starfsþróunardags voru þátttakendur beðnir um að meta daginn, kennsluaðferðir og gefa ábendingar um hvað mætti betur fara ásamt því að benda á hvaða fræðslu eða þjálfun þeir töldu sig hafa mest gagn af. Þannig var hægt að sníða starfsþró- unarárið að þátttakendum. Ásamt þeim markmiðum sem áður er getið er eitt af mark - miðum starfsþróunarárs erlendra hjúkrunarfræðinga að tengja hópinn saman, en rannsóknir hafa sýnt að jafningastuðningur er mikilvægur þegar verið er að taka fyrstu skrefin á nýjum vinnustað. Á starfsþróunarárinu voru allir hjúkrunarfræðing- arnir í stuðningshópum sem var stýrt af reyndum íslenskum hjúkrunarfræðingum sem allir höfðu reynslu af því að flytjast búferlum og starfa sem hjúkrunarfræðingur í öðru landi. kostir þess að hafa stuðningshópa líkt og þessa eru að hjúkrunar- fræðingar fá rými til þess að deila sinni reynslu með öðrum sem eru að kljást við svipaða reynslu. Í heildina kom starfsþróunarárið vel út og voru þátttak- endur sammála um að starfsþróunarárið hjálpaði þeim að tak - ast á við starfið, jók starfsánægju, kynnti þeim betur starfsemi spítalans ásamt því að hvetja til frekari starfsþróunar í hjúkrun. Deildarstjórar lýsti einnig ánægju sinni með þetta fyrirkomu- lag. nú í febrúar hófst nýtt starfsþróunarár fyrir nýlega ráðna erlenda hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Þátttakendur eru liðlega tuttugu. Skipulag og innihald þess byggist að miklu leyti á fyrra starfsþróunarári og niðurstöðum úr könnun meðal þátttakenda á fyrra starfsþróunarári. niðurstaða okkar á Landspítala er að starfsþróun eins og hér er lýst, sem er sérsniðin að fræðsluþörfum hjúkrunarfræð- inga sem hingað koma til starfa, sé forsenda farsæls starfs og samvinnu við íslenskumælandi hjúkrunarfræðinga og sjúk- linga. Það er enn fremur mikilvægt að veita formlegan stuðn - ing og hvatningu, bæði miðlægt og á deildinni sem við kom- andi starfar á. Við treystum því að hjúkrunarfræðingar taki vel á móti erlendum hjúkrunarfræðingum, aðstoði þá við að kom- ast inn í starfið og sýni þeim tillitssemi og sanngirni fyrstu mánuðina í starfi. Það er trú okkar að til framtíðar muni störf þeirra hér auðga og efla hjúkrun á Íslandi. móttaka og starfsþróun hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna á landspítala tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 27 Markmið starfsþróunarársins var að auka ör- yggi þeirra í starfi og leggja grunn að farsælum starfsferli. … Ólíkt íslenskum hjúkrunarfræð- ingum á starfsþróunarári eru erlendir hjúkr- unarfræðingar sem hingað koma með mismikla starfsreynslu og ólíkt grunnnám. Á starfsþróunarárinu voru allir hjúkrunarfræð - ingarnir í stuðningshópum sem var stýrt af reyndum íslenskum hjúkrunarfræðingum sem allir höfðu reynslu af því að flytjast búferlum og starfa sem hjúkrunarfræðingur í öðru landi.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.