Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 25
hafa hugrekkið til að bregðast við. Og ég tel það vera sjálfsagt
mál að nýta mína sérþekkingu til þess að bregðast við. En ég
er líka að starfa við það og mér finnst það sjálfsagt,“ segir Elísa -
bet og glottir út í annað.
Varð djúpt snortin út af viður-
kenningunni
Þú varst valin árið 2020, sem Framúrskarandi ungur Íslendingur
árið 2020 af JCI-hreyfingunni á Íslandi fyrir framlag þitt á sviði
mannúðar- og sjálfboðaliðamála. Er það ekki svolítið fullorðins,
og hvernig varð þér við þegar þú fékkst tilkynninguna um valið?
„Mér finnst þetta mjög flókið. Ég átti mjög erfitt með þetta og
sagði engum frá fyrr en fréttin birtist opinberlega. Ég var á
báðum áttum með viðurkenninguna þegar ég fékk hana, bæði
var ég mjög djúpt snortin yfir því að einhver væri tilbúinn að
veita mér viðurkenningu fyrir öll mín störf í gegnum mínu
stuttu lífstíð og varð meyr. En ég varð líka hugsi því ég veit að
ég hlaut viðurkenninguna líka að hluta til út af mínum forrétt-
indum. Og þar flæktust málin. Ég tek þessu ekki sem sjálf-
sögðum hlut, en ég átti erfitt með þetta því ég vinn náið með
hetjum sem hafa gleymst og fá oft ekki viðurkenningar, hvað
þá grundvallarþjónustu, og mannréttindi þeirra oft ekki virt.
En móðir mín sagði við mig að ég gæti líka litið á þetta á þann
veg að það væri verið að veita okkur öllum viðurkenningu —
málstaðnum og þessari sterku skírskotun til hjúkrunar. að
þetta sé eitthvað sem sé viðurkennt. Og það gaf mér styrk
áfram eftir erfitt ár.“
Brennur fyrir mannréttindum og
málsvarahlutverki hjúkrunarfræðinga
Ertu ekki að rifna yfir stolti yfir þínum árangri og hvað þú ert
að gera frábæra hluti með þínu góða samstarfsfólki? „jú, ég
vakna þakklát á hverjum degi fyrir sjálfboðaliðana sem stuðla
að því að ekki ein vakt falli niður í miðjum heimsfaraldri og
fyrir að notendur þjónustunnar treysta okkur fyrir málsvara-
starfi, treysta okkur fyrir sögum sínum og treysta okkur fyrir
því að hitta sig til að stuðla að heilsu þeirra. Ég brenn fyrir
mannréttindum, málsvarahlutverki hjúkrunarfræðinga og
stefnumótun út frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga og hef
einnig dálæti á að kenna hjúkrunarnemum sem brenna alltaf
af áhuga, hef verið aðstoðarkennari og stundakennari við
hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands síðan ég var nemandi og
síðar sem útskrifaður hjúkrunarfræðingur.“
Hvað gerir þú til að tæma hugann að loknum vinnudegi?
„Síðustu ár hafa einkennst mikið af vinnunni minni og ég er
gífurlega þakklát fyrir öll tækifærin þar. En ég hef þurft að
koma mér upp góðum ráðum til þess að komast í gegnum öll
þessi tímabil og að starfa í óútreiknanlegu umhverfi á hverjum
degi. Ég á gífurlega góða og sterka fjölskyldu og vini sem styðja
við bakið á mér, ég reyni að læra eitthvað nýtt í hverjum
mánuði og hef nýlega byrjað að prjóna. Mig langar að skrá mig
í smíðanámskeið bráðlega. Ég veit að samkenndarþreyta er
eitthvað sem getur orðið til hjá heilbrigðisstarfsfólki og öðrum
sem starfa mikið með öðrum og fyrir aðra, og ég reyni mitt
besta til að passa upp á mig og temja mér jákvæð hollráð. hug-
leiðsla, slökun, útivist og kærleiksríkur félagsskapur er eitthvað
sem ég reyni að umvefja mig.
kærleiksrík leiðtogahæfni er líka eitthvað sem ég reyni að
tileinka mér í starfi, að taka ákvarðanir og stýra verkefnum af
umhyggju og vera óhrædd við það. Það er sama hvað kemur á
borð til mín, ég reyni að standa með mínum gildum og stund -
um er það erfitt en það borgar sig alltaf fyrir mig sem mann-
eskju,“ segir Elísabet kát í bragði og ánægð og stolt með stöðu
sína í dag.
Viðtal: Magnús Hlynur Hreiðarsson
berst fyrir málefnum heimilislausra og er ötul baráttukona jaðarsettra hópa
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 25
Ásta Thoroddsen, prófessor við Hjúkrunarfræðideild HÍ,
hefur verið valin formaður nýrrar ritstjórnar sem nýlega
var sett á laggirnar fyrir flokkunarkerfið ICNP (Interna-
tional Classification of Nursing Practice) af hálfu ICN,
Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga. Hlutverk ritstjórnarinnar
er að vera tengiliður við stjórn ICN og SNOMED Interna-
tional, vinna að framgangi og innleiðingu á ICNP á al -
þjóða vísu. „Það er mikill heiður fyrir mig og hjúkrunar-
fræðinga á Íslandi að vera valin í þetta embætti. Með
þessu skapast tækifæri fyrir okkur að hafa enn meiri áhrif
á hvernig hjúkrun er kynnt í gegnum hjúkrunarnæm hug -
tök og hvaða hugtök í hjúkrun við vijum sjá í ICNP.“
Ásta Thoroddsen formaður ritstjórnar um ICNP hjá ICN
„Ég tek þessu ekki sem sjálfsögðum hlut, en ég
átti erfitt með þetta því ég vinn náið með
hetjum sem hafa gleymst og fá oft ekki viður-
kenningar, hvað þá grundvallarþjónustu, og
mannréttindi þeirra oft ekki virt. En móðir mín
sagði við mig að ég gæti líka litið á þetta á þann
veg að það væri verið að veita okkur öllum
viðurkenningu — málstaðnum og þessari sterku
skírskotun til hjúkrunar.“