Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 82
Útdráttur
Tilgangur: Konur sem hafa afplánað refsidóma hafa flestar, ef ekki
nær allar, einhverja áfallasögu að baki. Þær glíma við flókinn vanda
sem einkennist af vímuefnanotkun og afleiðingum hennar. Lítið er
vitað um reynsluheim þeirra í íslenskum fangelsum og af meðferðar-
úrræðum innan og utan fangelsis. Tilgangur rannsóknarinnar er að
auka þekkingu og dýpka skilning á þeirri reynslu þeirra.
Aðferð: Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn tóku þátt níu konur á
aldrinum 20–45 ára. Þær áttu allar við vímuefnavanda að stríða og
höfðu allar leitað sér meðferðar við honum. Tekin voru tvö viðtöl við
allar nema tvær, samtals 16 viðtöl.
Niðurstöður: Konurnar höfðu allar leitað sér aðstoðar vegna vímu-
efnavanda fyrir afplánun. Þær höfðu leitað í flest meðferðarúrræði
sem í boði voru hér á landi, og höfðu einnig leitað sér vímuefna -
meðferðar erlendis. Flestar konurnar notuðu vímuefni um æð og
glímdu við heilsufarsvanda því tengdan. Konurnar höfðu flestar orðið
fyrir einhvers konar áföllum í æsku eða á fullorðinsárum. Var vímu-
efnaneyslan einhvers konar bjargráð til að flýja eða lifa af erfiðar
aðstæður. Vímuefnaneyslunni fylgdi síðan mikil vanlíðan, depurð og
kvíði. Meirihluti þeirra voru mæður og höfðu misst börn sín frá sér
vegna vímuefnanotkunarinnar. Konurnar óskuðu þess flestallar að
unnið væri úr áföllum þeirra meðan vímuefnameðferðin færi fram
þar sem þær töldu vímuefnaneyslu sína vera nátengda þeim áföllum
sem þær höfðu orðið fyrir. Þeim fannst mikilvægt að virkara með -
ferðarstarf væri í fangelsum og kvörtuðu undan iðjuleysi sem þeim
fannst ekki einungis erfitt heldur einnig auka vanlíðan þeirra og fíkn
í vímuefni. Ályktanir: Rannsókn þessi sýnir að mikilvægt er að nýta
viturlegar en nú er gert þann tíma sem konur afplána refsidóm, t.d.
með því að veita meðferð við vímuefnavanda og við þeim áföllum
sem þær hafa orðið fyrir sem börn, unglingar og fullorðnar konur.
Lykilorð: konur, fangelsi, áföll, vímuefnavandi, kvenfangi, fyrirbæra -
fræði, viðtöl
Inngangur
Á síðastliðnum árum hefur vímuefnaneysla verið vaxandi
vandi í heiminum. Gera má ráð fyrir að fimm prósent allra
fullorðinna einstaklinga í heiminum hafi notað ólögleg vímu-
efni að minnsta kosti einu sinni á ævinni eða alls um 250 millj-
ónir manna. Af þessum ölda má gera ráð fyrir að um 29,5
milljónir manna lendi í vímuefnavanda (Fíkniefna- og saka-
málastofnun Sameinuðu þjóðanna, 2017; Koob og Volkow,
2010; Rhemtulla o.fl., 2016). Á Íslandi hafa 10,4% núlifandi
karla og 4,6% kvenna leitað sér aðstoðar vegna áfengis og ann-
arra vímugjafa hjá SÁÁ. Hlutfall kvenna hefur verið um 30%
frá árinu 2009 (SÁÁ, 2016). Alls lögðust 528 konur á sjúkra-
húsið Vog árið 2018 á móti 1144 karlmönnum (SÁÁ, 2019).
Afleiðingar vímuefnanotkunar
Neikvæðar afleiðingar vímuefnaneyslu eru óumdeildar. Þung-
lyndi, kvíði og ýmiss konar alvarleg geðröskun er algengari
meðal þeirra sem eiga við vímuefnavanda að stríða (Schuckit,
2006; Walker og Druss, 2016) og ótímabær dauðsföll, slys og
skerðing lífsgæða eru þekktar afleiðingar vímuefnaneyslu
(Chander o.fl., 2006). Líkamlegur heilsufarsvandi tengist einnig
vímuefnanotkun, sér í lagi meðal þeirra sem neyta vímuefna
um æð en árið 2015 var gert ráð fyrir því að tæpar 12 milljónir
einstaklinga í heiminum noti vímuefni um æð. Einn áttundi
82 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Arndís Vilhjálmsdóttir, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Sigríður Halldórsdóttir, framhaldsnámsdeild heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Sigrún Sigurðardóttir, framhaldsnámsdeild heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Reynsluheimur kvenna í íslensku fangelsi og reynsla
þeirra af meðferðarúrræðum innan og utan fangelsis
Nýjungar: Rannsóknin sýnir hve konur í íslensku fangelsi
geta glímt við flókinn heilbrigðisvanda og hve réttlausar og
berskjaldaðar þær geta verið.
Hagnýting: Rannsóknin veitir aukna þekkingu og dýpri
skiln ing á reynsluheimi þessara kvenna sem mæta o for-
dómum innan heilbrigðiskerfisins og sýnir mikilvægi þess
að tekið sé tillit til þess flókna heilbrigðisvanda sem þær
glíma við.
Þekking: Þátttakendur áttu margföld áföll að baki og þuru
á flókinni áfallamiðaðri hjúkrun og meðferð að halda en
fengu enga.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:Með aukinni þekkingu og
dýpri skilningi á áfallasögu og heilbrigðisvanda kvenna með
alvarlegan vímuefnavanda hafa hjúkrunarfræðingar, sem
sinna þjónustu við þær, betri forsendur til að veita þeim
viðeigandi hjúkrun og umönnun hvar sem þeir starfa í heil-
brigðiskerfinu.
Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?