Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 34
Hreyfanlegur starfskraftur Það kann að virðast einfalt mál fyrir hjúkrunarfræðinga að flytja til annars lands og hefja þar störf. Vinnuafl þeirra er alls staðar eftirsótt og fjölmargir leggja land undir fót, ýmist á vit ævintýra eða í von um betri lífskjör. hjúkrunarfræðingar sem flytja til annarra landa til starfa eiga það sammerkt að vilja helst aðlagast fljótt (Choi, Cook og Brunton, 2019). raunin er þó sú að mörgum reynist erfitt að fóta sig á nýjum stað (Brun- ton og Cook, 2018; Brunton o.fl., 2019). Sinn er siðurinn í landi hverju og menningarmunur, samskiptaerfiðleikar, vinnu- álag, valdamismunur á milli erlendra hjúkrunarfræðinga og þeirra sem eru hagvanir heima fyrir getur hamlað skilvirkni í teymisvinnu og ógnað öryggi sjúklinga. glíman við nýtt og framandi tungumál er tímafrek og svo er snúið að semja sig að nýjum háttum, viðhorfum og reglum. Slík aðlögun gerist ekki einhliða heldur þarf hún að vera gagnkvæm, þar sem bæði aðkomnir og heimavanir laga sig að nýjum aðstæðum (Brunton og Cook, 2018; Brunton M. o.fl., 2019; Choi, Cook og Brunton, 2019). Ekki á heimavelli allt frá upphafi íslenskrar hjúkrunarsögu hafa íslenskir hjúkr- unarfræðingar sótt menntun og reynslu víða um lönd (Mar - grét guðmundsdóttir, 2010). Margir koma aftur reynslunni ríkari um það hvernig er að vera aðkomumaður og hvað það er krefjandi að hasla sér völl sem slíkur. Sjálf hef ég reynslu af að starfa í Danmörku fyrir nokkrum áratugum síðan. Þangað fór ég stuttu eftir úrskrift, nokkuð rogg - in með mína dæmigerðu íslensku skóladönsku. Þegar á hólminn var komið átti ég bæði erfitt með að skilja tungumálið og að gera mig skiljanlega. Ég sagði það sem ég kunni að segja en ekki endi- lega það sem ég vildi segja. Það kom fyrir að ég móðgaði sam- starfsfólk og sjúklinga með rangri orðanotkun, tónfalli eða áherslum. Margir höfðu alls kyns útskýringar um lífið og til- veruna á reiðum höndum fyrir mig sem kom frá „lille island“. alls kyns kurteisisvenjur voru framandi, hvenær átti að „þéra“, hvar mátti sitja og hvaða boðleiðir virkuðu. Í marga mánuði fannst mér ég vera ótrúlega leiðinleg og litlaus því ég gat hvorki verið fyndin á dönsku né svarað fyrir mig ef mér misbauð. Ég varð dauðþreytt að loknum vinnudegi því það fylgdi því stöðugt álag að máta sig inn í aðstæðurnar. Ljósu punktarnir í tilverunni voru hjúkrunarfræðingar, kollegar mínir, flestir danskir, sem studdu mig með ráðum og dáð. Þeir tóku mig með í mat, hittu mig utan vinnutíma, klöppuðu mér á bakið þegar ég misskildi, gerðu létt grín þegar svo bar undir, hughreystu mig þegar á móti blés og hvöttu mig áfram þangað til ég gat spjarað mig sjálf. Þær lögðu lykkju á leið sína til að hafa mig með og styðja mig og því fylgdi örugglega aukaálag fyrir þær. Ég er þeim ævinlega þakklát og hugsa til þeirra allra með hlýju. um þessar mundir starfa 115 erlendir hjúkrunarfræðingar sem eru skráðir hjá félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (fíh) á Landspítala, meirihluti frá asíu, aðallega filippseyjum, margir frá ýmsum löndum Evrópu en færri frá öðrum heims- álfum. Þeir eru um 7% af 1740 hjúkrunarfræðingum sem starfa á sjúkrahúsinu. auk þeirra eru einhverjir sem hafa ekki verið skráðir hjá fíh enn sem komið er, en eru í Eflingu eða Sfr (Landspítali, 2020). Samkvæmt upplýsingum frá hagstof- unni voru erlendir ríkisborgarar sem hlutfall af mannfjölda á Íslandi hátt í 14% árið 2020 (hagstofa Íslands, 2021). hlutfall erlendra hjúkrunarfræðinga á Landspítala er því mun lægra en hlutfall landsmanna með erlent ríkisfang. Betri hjúkrun í heimsþorpinu Ég efast ekki um að erlendir hjúkrunarfræðingar sem koma hingað eru í marga mánuði að glíma við svipuð tilvistarvanda- 34 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 Hjúkrun í „heimsþorpinu“ Þorgerður Ragnarsdóttir Alþjóðlega viðurkennd hjúkrunarmenntun er lykill að öruggum störfum um allan heim. Það er meðal þess sem gerir menntunina eftirsóknarverða fyrir ungt fólk. Frá upphafi hjúkrunar á Íslandi höfum við notið starfskrafta hjúkrunarfræðinga víða að. Íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa líka alla tíð verið víðförlir. Fjölþjóðlegur bakgrunnur hjúkrunarfræðinga er meðal þess sem gefur starfinu gildi. Í marga mánuði fannst mér ég vera ótrúlega leiðinleg og litlaus því ég gat hvorki verið fyndin á dönsku né svarað fyrir mig ef mér misbauð. Ég varð dauðþreytt að loknum vinnudegi því það fylgdi því stöðugt álag að máta sig inn í aðstæðurnar.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.