Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 46
fljótlega hófust umræður um nafn deildarinnar og einnig um
val á íslenskum orðum í tengslum við ensku orðin alternative,
complementary og integrative nursing sem höfðu fest sig í sessi.
Í umræðunum kom fram að margir félagar vildu halda hug-
myndafræði integrative nursing á lofti, að hér væri verið að
stunda gagnreynda hjúkrunarmeðferð sem styrkti og félli vel
að hefðbundinni meðferð. Á aðalfundi 2018 var nafnið fag-
deild um samþætta hjúkrun valið úr tillögum frá félögum. Þar
var enska heitið Integrative nursing haft til hliðsjónar. Í ársbyrj -
un 2021 voru 75 hjúkrunarfræðingar skráðir félagar í deild inni.
Helstu markmið fagdeildarinnar eru:
• að stuðla að viðurkenningu á notkun gagnreyndrar
samþættrar meðferðar innan heilbrigðiskerfisins sem
hefur þann tilgang að efla heilsu, lina þjáningar, draga
úr sjúkdómseinkennum og bæta lífsgæði.
• að vinna að auknu framboði á samþættri meðferð inn -
an heilbrigðiskerfisins og tryggja þátttöku hjúkrunar-
fræðinga í þeim efnum.
• að stuðla að aukinni þekkingu almennings, sjúklinga,
fagfólks og heilbrigðisyfirvalda á samþættum meðferðar -
úrræðum.
• að vera málsvari samþættra meðferðarúrræða í sam-
skiptum við félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, aðrar
heilbrigðisstéttir, fyrirtæki á heilbrigðissviði og stjórn-
völd.
• að hvetja til aukinnar menntunar hjúkrunarfræðinga á
sviði samþættra meðferðarúrræða, meðal annars með
því að efla hlut slíkrar menntunar í hjúkrunarnámi.
Þrír félagsfundir eru haldnir árlega, fræðslufundur að hausti,
jólafundur og aðalfundur í mars og í tengslum við hann er oft-
ast fræðslufyrirlestur. Á fundum hafa félagar oft kynnt og sýnt
þá samþættu meðferð sem þeir nota í starfi. Þar má nefna
slökun, núvitund, hugleiðslu, ilmolíumeðferð, nálastungur og
tónheilun. Málþing var haldið á vegum deildarinnar í febrúar
2018 og er áætlað að halda málþing um samþætt meðferðar-
úrræði annað hvert ár. Búið var að skipuleggja glæsilegt mál -
þing sl. haust í tilefni af 10 ára afmæli deildarinnar en því varð
að fresta vegna sóttvarnareglna.
félagar í fagdeildinni hafa tekið þátt í erlendum ráðstefnum
um samþætt meðferðarúrræði, til dæmis international inte -
grative nursing Symposium sem haldin er annað hvert ár.
allir félagar í félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem hafa
áhuga á samþættum meðferðarúrræðum, geta orðið félagar í
deildinni, óháð því hvort þeir veita slíka meðferð í starfi sínu
eða utan þess. Skrifstofa félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
tekur við umsóknum og sendir til formanns, www.hjukrun.is.
46 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Fagdeild um samþætta hjúkrun
Fagdeildin var stofnuð 2010 undir nafninu Fagdeild um viðbótarmeðferðir. Nafn deildarinnar
vísaði til úrræða sem ekki höfðu verið talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu en sýnt
hafði verið fram á með rannsóknum að nýttust samhliða hefðbundinni heilbrigðisþjónustu.
Stjórn fagdeildar um samþætta hjúkrun í febrúar 2021, talið frá vinstri,
sitjandi: Sigrún Sigurðardóttir, Lilja Jónasdóttir, Þóra Jenný Gunnars-
dóttir; standandi: Lóa Óskarsdóttir, Margrét Hákonardóttir, Rannveig
Björk Gylfadóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Hauksdóttur.
Á fundum hafa félagar oft kynnt og sýnt þá
samþættu meðferð sem þeir nota í starfi. Þar má
nefna slökun, núvitund, hugleiðslu, ilmolíu -
meðferð, nálastungur og tónheilun.