Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 61
Stefnuhópur FÍH hefur að undanförnu verið að skoða mögu-
leikann á því að taka upp ICNP (International Classification for
Nursing Practice) í stað NANDA og NIC. Kemur þar ýmislegt
til, en þó helst það að ICNP er þróað af hálfu ICN og hefur
nýlega verið samþykkt af WHO sem eitt af þeim alþjóðlegu
kóðakerfum sem WHO mælir með. Mikil þróun hefur átt sér
stað í sambandi við ICNP að undanförnu en hið sama á ekki við
um NANDA og NIC. Nú hefur einnig komið á daginn að
kostnaður við notkunarleyfi á NANDA og NIC er mikill, eða
um 2,5 milljón á hvort kerfi, árlega fyrir NIC og annað hvert ár
fyrir NANDA.
Í framhaldinu greindi Stefnuhópur Fíh frá niðurstöðu hópsins
„… að International Classification for Nursing Practice (ICNP),
sem þróað er af ICN, sé álitlegasti kosturinn fyrir Ísland“ (Ásta
Thoroddsen, 13. okt. 2009b). Að tillögu stjórnar Fíh tók emb-
ætti landlæknis þá ákvörðun árið 2010 að ICNP skyldi notað
á landsvísu sem aðalflokkunarkerfið til að skrá hjúkrun í raf-
rænni sjúkraskrá á sjúkrahúsum (Embætti landlæknis, 2020).
Frá því að ákvörðun var tekin hjá embætti landlæknis um að
nota skyldi ICNP við daglega skráningu í hjúkrun og fyrirmæli
þess efnis sett fram í lágmarksskráningu vistunarupplýsinga
hafa ekki komið fram skýrar áætlanir um hvernig að því skuli
staðið eða því komið í kring.
Ýmis rannsókna- og þróunarverkefni voru unnin af hjúkr-
unarfræðingum um notagildi Nursing Outcome Classification
(NOC) þótt það kæmist ekki í daglega notkun á Íslandi (Elísa -
bet Guðmundsdóttir, 2002; Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir,
2006).
Lágmarksskráning vistunar-
upplýsinga
Árið 2001 voru gefin út tilmæli landlæknis um lágmarksskrán-
ingu vistunarupplýsinga á sjúkrahúsum (Landlæknisemb-
ættið, 2001) þar sem sagði að „allar heilbrigðisstofnanir skuli
gera grein fyrir hjúkrunarvandamálum og -meðferð sjúklinga,
sem lagðir hafa verið inn á stofnanir frá og með 1. apríl 2001.“
Í fyrsta skipti var einnig tilgreint að nota skyldi NANDA-
flokkunarkerfið við skráningu hjúkrunarvandamála og NIC
fyrir hjúkrunarmeðferð. Svipuð tilmæli voru síðar gefin út
fyrir skráningu á heilsugæslustöðvum (Landlæknisembættið,
2002). Lágmarksskráning á heilbrigðisstöðvum lúta nú fyrir-
mælum landlæknis frá 2008 og frá 2011 á sjúkrahúsum (Land-
læknisembættið, 2008; 2011).
Sem fyrr er getið gaf embættið út fyrirmæli um lágmarks-
skráningu vistunarupplýsinga árið 2011 þar sem tilgreint er að
ICNP skuli notað til að skrá hjúkrunarvandamál og -meðferð
sjúklinga á öllum heilbrigðisstofnunum (Landlæknisembættið,
2011). Höfundi er ekki kunnugt um að stjórnvöld í nokkru
öðru landi í heiminum hafi gert slíkar kröfur til skráningar í
hjúkrun nema hér og í Noregi (Norsk sykepleierforbund, e.d.).
Erlendum samstarfsaðilum hefur þótt það athygli- og eftir-
sóknarvert að ákvörðun um notkun samræmds fagmáls til
skráningar hjúkrunar hafi verið tekin fyrir landið í heild í
samráði við hjúkrunarfræðinga. Þó má geta þess að ICNP er
notað á landsvísu í Portúgal, og Danir hafa tekið slíka ákvörð -
un einnig. ICNP hefur verið þýtt á íslensku af Ástu Thorodd-
sen og Brynju Örlygsdóttur. Hana má finna á heimasíðu Rann -
sókna- og þróunarseturs um ICNP, https://icnp.hi.is, og á vef
Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga, ICN, á slóðinni: https://www.
icn.ch/what-we-do/projects/ehealth-icnptm/icnp-browser.
Rafræn sjúkraskrá
Í kröfulýsingu fyrir rafræn sjúkraskrárkerfi, sem sett var fram
af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu árið 2001, kom
fram sú krafa að hjúkrunarvandamál skyldi skrá samkvæmt
NANDA (Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 2001).
Sjúkraskrárkerfið Saga var fyrst tekið í notkun árið 1995 á
heilsugæslustöðvum. Frá upphafi hefur verið hægt að skrá
upplýsingar um sjúklinga samkvæmt heilsufarslyklum og
hjúkrunargreiningar samkvæmt NANDA. Þótt ákvörðun um
að nota ICNP til daglegrar skráningar í hjúkrun hafi verið
tekin árið 2010 hefur það ekki enn verið innleitt í rafræna
sjúkraskrá. Vonir standa til þess að með stofnun Rannsókna-
og þróunarseturs um ICNP verði þeirri vinnu flýtt sem þarf til
að koma því í notkun.
Ýmis átaksverkefni tengd
hjúkrunarskráningu
Í gegnum árin hafa mörg átaksverkefni verið unnin víðs vegar
á landinu til að bæta skráningu á þann veg að hún endurspegli
saga hjúkrunarskráningar á íslandi
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 61
Connie Delaney, prófessor og deildarforseti School of Nursing við Há-
skólann í Minnesota, og Ásta Thoroddsen, prófessor og forstöðumaður
ICNP-setursins. Dr. Delaney flutti ávarp við opnun ICNP-setursins.