Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 68
vistun gagna. Tölfræði og skýrslur um ástand sjúklingahópa, heilsufar þeirra og
hjúkrun sem skráð hefur verið gefur tækifæri til að fylgjast náið með heilsu og hjúkr-
unarþörfum um tiltekinn tíma. Það getur gefið tilefni til að aðlaga og breyta hjúkrun-
armeðferð til að uppfylla betur þarfir fólks sem glímir við heilsufarsvanda. Upplýsingar
sem skráðar eru með flokkunarkerfum henta vel til rannsókna sem og við að velja
viðmið í gæða- og umbótaverkefnum. Á hinn bóginn er ekki unnt að nota frjálsan
texta, til dæmis úr framvindunótum, í þessum tilgangi nema með ærinni fyrirhöfn.
Með því að tengja gögn úr hjúkrun við upplýsingar úr öðrum upplýsingakerfum verða
stjórnunarupplýsingar enn fyllri, gefa ítarlegri tölur og meiri upplýsingar. Gögnin eru
þá notuð ópersónugreinanleg til að stjórnendur geti tekið saman skýrslur og upp -
lýsingar um þjónustu eða starfsemi til að kostnaðargreina, skipuleggja eða byggja
ákvarðanir á. Slík gögn auka sýnileika hjúkrunar. Jafnframt verður auðveldara að nota
tölur og skýrslur til að skoða starfsemi þar sem hjúkrunarþjónusta er veitt, meta gæði,
faglega ábyrgð og ávinning þeirrar hjúkrunar sem veitt er. ICNP er einnig hægt að
nota til að fella gagnreynda starfshætti inn í rafræna sjúkraskrá.
Stöðluð og kóðuð hugtök í hjúkrun eru dæmi um upplýsingastaðal sem jafnframt
er gæðastaðall fyrir gögn. Upplýsingastaðal má skilgreina á þann hátt að unnt er að
deila gögnum og bera þau saman milli heilbrigðisstofnana vegna þess að gögnin eru
skráð á sambærilegan hátt, meðal annars með því að sama flokkunar- og kóðakerfið
er notað. Gögn úr sjúkraskrá eru grunnurinn að heilbrigðistölfræði landsins.
Til eru mörg flokkunarkerfi í hjúkrun í heiminum og ICNP hefur sameinað mörg
þeirra. Í ICNP má til dæmis finna nær öll hugtök sem eru í NANDA-I og NIC. Frá
og með árinu 2021 verður ICNP gefið út í samvinnu við SNOMED-CT sem er
stærsta kóðakerfi sem til er innan heilbrigðisvísinda. Í SNOMED-CT eru hundruð
þúsunda hugtaka og í því sameinast mismunandi flokkunarkerfi í hjúkrun enn frekar.
Það er mikill akkur í því fyrir hjúkrun að njóta samvinnu við SNOMED-CT og það
mun flýta uppbyggingu á ICNP. ICNP verður engu að síður áfram á forræði ICN og
verður uppbyggingu þess haldið áfram þar en í samvinnu við SNOMED-CT.
Sjúkraskráin er þverfagleg. Við skráningu í sjúkraskrá nota læknar flokkunar-
kerfin ICD-10 og NCSP (Nordic Classification for Surgical Procedures), lyf eru skráð
með ATC og hjúkrun verður skráð með ICNP. Með notkun alþjóðlegra flokkunar-
kerfa er auðveldara að draga fram framlag hjúkrunar á sambærilegan hátt og hjá
öðrum fagaðilum. Það er því faglegur ávinningur af því að hjúkrunarfræðingar tali
og skilji fagmálið (mynd 1).
Hvernig er ICNP uppbyggt?
Flokkunarkerfið ICNP er byggt upp af um 4500 hugtökum á sjö mismunandi ásum
sem raða má saman til að mynda hjúkrunargreiningar, -útkomur og -meðferð eða
-íhlutun. Ásarnir eru: aðalhugtak, afstaða eða ákvörðun, hjúkrunarþegi, framkvæmd,
aðferðir, staðsetning á líkama eða í rúmi og tími (tafla 1).
ásta thoroddsen
68 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Mynd 1. Faglegur ávinningur af notkun
ICNP í hjúkrun.
• Sýnileiki og framlag hjúkrunar eykst
• Gæði hjúkrunarskráningar aukast og upplýsingar, sem þarf til að bregðast
við breytingum á heilsu og hjúkrunarþörfum skjólstæðinga, verða aðgengi-
legri
• Framlag hjúkrunar kemur fram í þverfaglegum heilbrigðisupplýsingakerfum
• Með ICNP er notaður upplýsingastaðall sem nota má til að efla þjónustu og
styðja við stefnumótun
• ICNP styður almenna og sérhæfða hjúkrunarþjónustu þvert á svið
• Gögn og upplýsingar verða til sem nota má til rannsókna
• ICNP styður við gagnreynda starfshætti
• ICNP sameinar mismunandi flokkunarkerfi í hjúkrun