Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 84
Rætt var við níu konur sem voru í afplánun eða höfðu fyrr á
lífsleiðinni afplánað refsidóm. Leitað var til Fangelsismálastofn-
unar sem gaf samþykki sitt fyrir rannsókninni. Skilyrði fyrir
þátttöku var að þátttakendur ættu eða hefðu átt við vímuefna-
vanda að stríða og hefðu afplánað refsidóm í fangelsi á Íslandi.
Níu konur, á aldrinum 20–45 ára, samþykktu þátttöku. Þær
uppfylltu fyrrnefnd skilyrði og voru tilbúnar til að deila reynslu
sinni. Konurnar voru ýmist í afplánun eða höfðu lokið henni.
Fyrsti höfundur tók öll 16 viðtölin. Tekin voru tvö viðtöl
við allar konurnar nema tvær þeirra vegna þess að þær luku
afplánun og ekki náðist í þær fyrir seinna viðtal. Hvert viðtal
var að jafnaði ein til tvær klukkustundir og ekki var munur á
tímalengd fyrri og seinni viðtala. Stuðst var við viðtalsáætlun
en samræðum ley að flæða frjálst. Var því um hálfstöðluð
viðtöl að ræða. Síðari viðtölin voru tekin frá einni viku til
tveimur mánuðum síðar, eir því sem hentaði þátttakendum.
Seinna viðtalið var notað til að dýpka frásögn kvennanna og
fá staðfestingu á að rannsakandi hefði túlkað rannsóknar-
gögnin rétt (Helga Jónsdóttir, 2013). Viðtölin fóru flest fram
inni í fangelsinu. Viðtöl við þær sem áður höfðu afplánað dóm
fóru fram á stað að þeirra vali. Áður en konurnar tóku þátt í
rannsókninni völdu þær sér rannsóknarnafn sem notað var
við úrvinnslu gagna. Viðtölin voru tekin upp og voru svo skráð
orðrétt. Eir að þau höfðu verið skráð var upptökum eytt.
Rannsakandi hafði einn aðgang að ópersónugreinanlegum
gögnum. Viðtölin voru greind eir 12 þrepum Vancouver-
arndís vilhjálmsdóttir, sigríður halldórsdóttir og sigrún sigurðardóttir
84 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Tafla 1. Rannsóknarferli Vancouver-skólans
Rannsóknarþáttur Hvað gert var í þessari rannsókn
Þrep 1. Velja samræðufélaga (úrtakið) Níu konur, sem afplánuðu refsidóm, voru valdar með tilgangsúrtaki,
tvær sem höfðu lokið afplánun fengust með snjóboltaúrtaki
Þrep 2. Vera kyrr Til að koma í veg fyrir að fyrirframmótaðar hugmyndir hefðu áhrif
á niðurstöðurnar var staldrað við og reynt að leggja þær til hliðar
Þrep 3. Taka þátt í samræðum. Gagnasöfnun Tvö viðtöl við sjö kvennanna, eitt viðtal við tvær þeirra; viðtals-
rammi hálfstaðlaður og fór gagnasöfnun fram í gegnum samræður
Þrep 4. Hea gagnagreiningu, skerpt vitund varðandi orð Gagnagreining var unnin samhliða gagnasöfnun
Þrep 5. Hea gagnagreiningu á þrepum Til að svara spurningunni „hver er reynsla konunnar?“ var textinn
lesinn nokkrum sinnum yfir
Þrep 6. Átta sig á heildarmynd af reynslu hvers einstaklings Rauði þráður frásagnarinnar var fundinn með að raða mikilvægustu
atriðunum úr frásögninni upp
Þrep 7. Staðfesta heildarmynd af reynslu hvers einstaklings með Hverjum kvenfanga voru kynntar niðurstöður gagnagreiningar-
honum sjálfum innar
Þrep 8. Átta sig á heildarmyndinni — meginniðurstöður Niðurstöður allra samræðna túlkaðar í eina heildarmynd sem alfarið
var byggð á rannsóknargögnum
Þrep 9. Bera niðurstöðurnar saman við rannsóknargögn eða
rituðu samræðurnar til að sjá hvort samræmi sé á milli þeirra Viðtölin lesin aur yfir til að ganga úr skugga um samræmi
Þrep 10. Velja rannsókninni heiti sem lýsir niðurstöðum hennar „Mér finnst bara eins og allar konur hafi áfallasögu í gegnum neyslu“
Þrep 11. Sannreyna niðurstöður með rannsakendum Niðurstöður sannreyndar með nokkrum þátttakendum
Þrep 12. Skrifa upp niðurstöður rannsóknarinnar Vitnað var orðrétt í konurnar svo reynsluheimur þeirra fengi að
heyr ast sem best
Tafla 2. Rannsóknarnöfn þátttakanda og yfirlit yfir neikvæða
áhrifaþætti í uppvexti
Rann- Neikvæðir áhrifaþættir Aldur við Annar vandi en
sóknar í bernsku upphaf vímuefnavandi
nafn konu notkunar
vímuefna
Sigrún Kynferðisleg misnotkun 12 ára Átröskun, áfallastreitu-
röskun, ADHD
Anna Hegðunarvandi 14 ára ADHD, geðhvarfasýki,
geðrofseinkenni
Karítas Einelti, missir 12 ára Persónuleikavandi,
nákomins, áfall kvíði
Selma Kynferðisleg misnotkun, 11 ára Kvíðaröskun, áfalla-
vanræksla, vímuefna- streituröskun
notkun foreldra, einelti
Fríða Hegðunarvandi, vímu- 12 ára Enginn
efnanotkun foreldra
Bára Kynferðisleg misnotkun 35 ára ADHD, reynt sjálfsvíg
Helga Greindi ekki frá nei- 29 ára Kvíðaröskun, ofsakvíði
kvæðum áhrifaþáttum
í æsku
Dóra Kynferðisleg misnotkun 12 ára ADHD, þunglyndi, kvíði
Berglind Einelti, hegðunarvandi 12 ára ADHD, einhverfa,
persónuleikavandi