Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 92
92 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Útdráttur
Markmið: Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar mæta ýmsum áskor-
unum þegar þeir hefja starfsferil sinn. Hjúkrunarstarfið krefst mik-
illar þekkingar, færni og öryggis sem þróast samhliða aukinni reynslu
í starfi. Námið, eitt og sér, virðist ekki alltaf duga til að undirbúa
hjúkrunarfræðinga fyrir allt sem starfið felur í sér og oftar en ekki
finnst nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum að þeim sé hent út í
djúpu laugina þegar þeir hefja störf. Markmið þessarar rannsóknar
var að öðlast innsýn í hvaða áskoranir mæta nýútskrifuðum hjúkr-
unarfræðingum fyrsta árið í starfi, hversu tilbúnir þeir telja sig vera
til að takast á við þær og hvaða bjargráð þeir nýta sér til að vinna úr
þessum áskorunum til að stuðla að góðri líðan í starfi. Með því að
átta sig á þeim áskorunum sem nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar
mæta daglega í störfum sínum er hægt að styðja við þá í starfi og
stuðla þar með að aukinni starfsánægju og sporna gegn kulnun í
starfi og brottfalli úr stéttinni.
Aðferð: Stuðst var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem sett voru
þau skilyrði að þátttakendur hefðu brautskráðst frá hjúkrun-
arfræðideild Háskólans á Akureyri á árunum 2013–2017. Einnig voru
sett þau skilyrði að þátttakendur væru starfandi á legudeildum
sjúkrahúsa og hefðu unnið samfellt á sama vinnustað í a.m.k. þrjá
mánuði.
Niðurstöður:Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðinámið undirbjó
þátttakendur vel fyrir hjúkrunarstarfið og þær áskoranir sem mættu
þeim þegar þeir hófu störf sem hjúkrunarfræðingar og töldu þeir að
einstaklingsmiðuð aðlögun væri lykilatriði. Allir þátttakendur voru
sammála um nauðsyn þess að tileinka sér jákvæð bjargráð í starfi og
stuðla þannig að aukinni starfsánægju. Jákvætt viðhorf til starfsins
var einkennandi meðal viðmælenda en samkvæmt þeim er það einn
af þeim mikilvægu þáttum sem geta dregið úr líkum á kulnun ásamt
brottfalli úr faginu.
Ályktanir: Þrátt fyrir að hjúkrunarfræðingar nýti sér jákvæð bjargráð
og séu meðvitaðir um streitutengda þætti starfsins er ekki síður
mikilvægt að þeir njóti stuðnings vinnufélaga og stjórnunin sé góð.
Lykilorð:Hjúkrunarfræðingur, nýútskrifaður, áskoranir og bjargráð,
innihaldsgreining
Inngangur
Starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga hefur breyst töluvert í
tímans rás og er í dag afar fjölbreyttur. Kröfur á færni og þekk-
ingu hjúkrunarfræðinga eru því miklar og slíkt kallar á góða
bóklega og verklega þjálfun á meðan á námi stendur (Katrín
Blöndal o.fl., 2010; Vilborg Guðlaugsdóttir, 2009; World Health
Organization, 2020). Bæði Háskóli Íslands (HÍ) og Háskólinn
á Akureyri (HA) bjóða upp á nám í hjúkrunarfræði með fjölda-
takmörkunum. Takmarkanirnar ráðast bæði af fjárveitingu og
þeim fjölda verknámsplássa sem eru í boði en að meðaltali út-
skrifast um 120 hjúkrunarfræðingar ár hvert (Guðbjörg Páls-
dóttir o.fl., 2017; Ríkisendurskoðun, 2017). Samkvæmt nýlegri
rannsókn eru vísbendingar um að þriðjungur nýútskrifaðra
hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema telji ólíklegt að
þeir komi til með að starfa við hjúkrunartengd störf í fram tíð -
inni (Helga Ólafs, 2017). Í desember 2019 var skipaður starfs-
hópur um menntun hjúkrunarfræðinga og aðgerðir til að sporna
gegn skorti á hjúkrunarfræðingum. Í kjölfarið var, í apríl 2020,
Guðríður Ester Geirsdóttir, lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Telma Kjaran, blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans
Kristín Anna Jónsdóttir, heimahjúkrun Reykjavíkur, Rjóðri Landspítalans
Kristín Norðkvist Ragnarsdóttir, lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Hafdís Skúladóttir, hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri
Hent í djúpu laugina
Áskoranir í starfi nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga, líðan þeirra og bjargráð
Nýjungar: Rannsóknin varpar ljósi á veganesti nýútskrifaðra
hjúkrunarfræðinga úr náminu yfir í starfið, hvernig hjúkrunar -
fræðinámið nýtist þegar út á vinnumarkaðinn er komið og að
misvel er staðið að aðlögun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga.
Hagnýting:Niðurstöður geta hjálpað stjórnendum að skoða
hvaða þætti í aðlögun og innkomu í starfið þarf að laga til að
auka öryggi og bæta líðan nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga.
Viðbót við þekkingu: Niðurstöður eru innlegg í fræði stjórn-
unar í hjúkrun þar sem hægt er að nýta þær til að stuðla að
umbótum við aðlögun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga og
gera þeirra fyrstu skref á vinnumarkaðinum auðveldari og
minna streituvaldandi.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Niðurstöður geta verið
hvatning til stjórnenda í hjúkrun um að semja verklagsreglur
um aðlögun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga, veita þeim
bjarg ráð í starfinu og minnka þannig líkur á kulnun og brott-
falli úr starfi.
Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?