Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 16
16 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Er heilbrigðiskerfið að undirbúa sig undir næsta heimsfaraldur eða næstu áskoranir? Ég held að næsta áskorun verði hversu fljótt við getum risið upp eftir þetta mikla átak. Að detta ekki ofan í einhverja ládeyðu heldur nýta okkur það sem við höfum lært. Það er óhemjumargt sem við höfum fengið út úr þessari áskorun og þessari kreppu, eins og gerist í öllum kreppum, þá er alltaf heilmikill lærdómur. Hvernig getum við nýtt okkur hann og haldið áfram. Ég held að það skipti miklu máli. Við þurfum að hlúa að starfsfólkinu og taka upp þau verkefni sem við vorum að þróa og halda áfram með þau. Út frá heilsugæslunni þá eru bæði kostir og gallar sem fylgja í kjölfar COVID. Við höfum fengið ofboðslega mikla umfjöllun og við það þá hefur ásóknin inn á heilsugæsluna margfaldast og örugglega inn í allt heilbrigðiskerfið. Fólk hefur lágan þröskuld til að hafa samband við heilbrigðiskerfið, bæði vegna heilsukvíða og líka vegna þess að fólki finnst það þurfa ráðgjöf. Þannig að þjónustuþörfin er orðin gífurleg sem verður mikil áskorun fyrir okkur öll að ég tel. Hvernig ætlum við að halda utan um þetta, sinna þessu og styrkja fólk aftur til sjálfbærni varðandi heilsu? Í mislingafaraldrinum kveiktum við á netspjallinu á Heilsuveru og sáum hvað það var að virka vel. Kynslóðin í dag og komandi kynslóðir eiga miklu erfiðara með að taka upp tólið, netspjall er þeirra leið og í COVID sáum við hvað netspjallið skipti miklu máli. Nú er búið að setja upp upplýsingastöð heilsugæslunnar og við sjáum fyrir okkur að öll samskipti varðandi upplýsingar og ráðgjöf til almenning verði þar. Þetta verður andlit heilsu- gæslunnar og vegvísir í fyrstu samskiptum við almenning. Hvað höfum við sem samfélag og heilbrigðiskerfi lært í faraldrinum? Samstaða í heilbrigðiskerfinu er alveg frábær og ég held að íslenska heilbrigðiskerfið hafi staðið sig ofboðslega vel í gegnum þetta. Bæði Landspítalinn með COVID-göngudeildina og meðferðina sem er alveg frábær og svo heilsugæslan með sýnatökur og bólusetningar. Samskipti milli allra stofnana; Embætti Landlæknis, Landspítala, heilsugæslu- stöðva, sóttvarnalæknis og stofnana úti á landi, hafa verið til fyrirmyndar. Innviðirnir hafa því styrkst mikið og ég finn mikinn mun, hvernig allt kerfið er orðið samstilltara, það er meira samráð og kallað eftir samstillingu. Ragnheiður ásamt barnabarni sínu. Viðtal
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.