Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 65
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 65 COVID-19 faraldurinn hefur haft umtalsverðar breytingar á námstilhögun í för með sér fyrir nemendur á öllum skólastigum hérlendis sem og erlendis, en kennsla féll víða niður og skólabyggingum var lokað í fyrstu bylgju faraldursins. Nokkurrar óvissu gætti um framvindu faraldursins og áhrif hans á nám í hjúkrunarfræði á Íslandi. Alþekkt er að óvissa eykur streitu og jafnframt að mikil streita hefur neikvæð áhrif á vellíðan og getu til að tileinka sér nýja þekkingu. Stór hluti nemenda í hjúkrunarfræði var enn fremur starfsmenn heilbrigðisstofnana og þurfti því að auki að takast á við þá ógn og óvissu sem fylgdi faraldrinum t.d. vegna ótta þeirra við að smitast eða smita skjólstæðinga sína eða fjölskyldumeðlimi. Erlendar rannsóknir sýna neikvæð áhrif faraldursins meðal annars á andlega heilsu nemenda (Kim o.fl., 2021; Reverté-Villarroya o.fl., 2021), einbeitingu og nám (Lovrić o.fl., 2020). Nám í hjúkrunarfræði er streituvaldandi og vísbendingar eru um að streita meðal nemenda í hjúkrunarfræði sé algeng (Labrague o.fl., 2014; Simonelli-Munnoz o.fl., 2018). Í rannsókn meðal fyrsta og annars árs nemenda í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri (HA) (Eva Mjöll Júlíusdóttir og Helga Berglind Hreinsdóttir, 2010) mældist meirihluti þátttakenda yfir meðal streitustigi fyrir nemendur almennt samkvæmt viðmiðum Cohen og Williamson (1988). Sambærilegar niðurstöður komu fram í rannsókn meðal nemenda í grunnnámi við Háskóla Íslands (HÍ) árið 2016 (Sigríður Lilja Magnúsdóttir og Valdís Ingunn Óskarsdóttir, 2016). Of mikil streita er skaðleg líðan og andlegri heilsu (Labraque o.fl., 2014, 2018) og hefur áhrif á námsgetu og námsárangur (Galvin o.fl., 2015). Vitað er að streita nemenda eykst alla jafna eftir því sem lengra líður á nám þeirra (Alzayyat og Al-Gamal, 2014) og nemendur geta jafnvel sýnt byrjandi einkenni kulnunar við útskrift úr námi (Sheroun o.fl., 2020). Þættir sem valda streitu má bæði rekja til fræðilega hluta námsins en ekki hvað síst klíníska hluta þess. Helstu streituvaldar í fræðilega hluta námsins eru próf og hræðslan við að standast ekki námskröfur og verkefnaálag (Galvin o.fl., 2015). Nemendur lýsa klíníska náminu gjarnan sem mikilvægum og ánægjulegum hluta námsins (Hrund Sch. Thorsteinsson, 2006), en jafnframt sem streituvaldandi (da Silva o.fl., 2014). Dæmi um streituvalda í klínísku námi eru að hafa umsjón með og annast sjúklinga, of mikil og margvísleg ábyrgð, hræðsla við mistök, samskipti við starfsmenn hjúkrunar og kennara (Al- Gamal o.fl., 2018), skortur á faglegri þekkingu og færni (Bahadir-Yilmaz, 2016; Labraque, 2014), vinnuálag vegna verkefna (Chen og Hung, 2014) auk klíníska umhverfisins sjálfs (Blomberg o.fl., 2014) og stöðugrar tilfærslu milli klínískra vettvanga (Al-Gamal o.fl., 2018; Rudman og Gustavsson, 2012). Í þverskurðarrannsókn meðal liðlega 600 nemenda í hjúkrunarfræði í upphafi COVID-19 faraldursins (Aslan og Pekince, 2020) kom fram að aldur, kyn, fréttaáhorf, hræðsla við smit og útgöngubann spáðu saman fyrir um streitustig. Í erlendri viðtalsrannsókn (Luberto o.fl., 2020) hafa nemendur í heilbrigðisvísindum, þar með talið nemendur í hjúkrunarfræði, lýst áhyggjum af heilsufari annarra, svo sem fjölskyldu, skjólstæðinga og samstarfsfólks og óttuðust nemendur að vera smitberar COVID-19. Enn fremur höfðu nemendur áhyggjur af andlegri líðan fólks almennt, félagslegri einangrun sjúklinga og óvissu (Casafont o.fl., 2021). Þá sýndi rannsókn frá Filippseyjum að rúmlega þriðjungur hjúkrunarnemenda upplifði mikla einmanakennd á tímum COVID-19 (Labrague o.fl., 2021). Nemendur höfðu einnig áhyggjur af námi og miklum röskunum tengdum náminu (Luberto o.fl., 2020; Casafont o.fl., 2021). INNGANGUR HRUND SCH. THORSTEINSSON Landspítala og Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands JÓHANNA BERNHARÐSDÓTTIR Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala MARGRÉT HRÖNN SVAVARSDÓTTIR Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri ERLA KOLBRÚN SVAVARSDÓTTIR Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala GÍSLI KORT KRISTÓFERSSON Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands, og Sjúkrahúsinu á Akureyri HERDÍS SVEINSDÓTTIR Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala BIRNA G. FLYGENRING Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Streita nemenda í hjúkrunarfræði í fyrstu bylgju COVID-19: Þversniðsrannsókn Ritrýnd grein | Peer review Höfundar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.