Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 8
8 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Nýr sviðsstjóri
kjara- og
réttindasviðs
Hafdís Böðvarsdóttir
hefur verið ráðin
fjármálastjóri Fíh
Kristjana Elísabet Guðlaugsdóttir hefur verið ráðin sviðs-
stjóri kjara- og réttindasviðs Fíh. Kristjana er með BSc í
viðskiptafræði og meistaranám í forystu og stjórnun með
áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
,,Ég þekki vel til ýmissa verkefna kjara- og réttindasviðs, hef
meðal annars sótt námskeið í jafnlaunavottun og verið við
innleiðingu betri vinnutíma, bæði hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja og hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands,“ segir
Kristjana sem hefur starfað við mannauðstengd mál í hartnær
20 ár. ,,Lengst af var áherslan fyrst og fremst á réttindamál
starfsmanna, síðari ár hef ég unnið sem starfsmannastjóri
hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og mannauðsstjóri hjá
Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Ég þekki vel starfsumhverfi
hjúkrunarfræðinga, hef tekið þátt í gerð stofnanasamninga,
bæði við Fíh, fyrir hönd stofnunar sem og við önnur stéttar-
félög. Ég brenn fyrir mannauði stofnana og fyrirtækja og því er
frábært að fá tækifæri til að sinna því hugðarefni með beinum
hætti með öðrum frábæru starfsmönnum Fíh,“ segir Kristjana
hress í bragði.
Hafdís Böðvarsdóttir er nýr fjármálastjóri Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Hún ólst upp á Akranesi og lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hafdís
lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og prófi til
löggildingar í endurskoðun árið 1997.
Hafdís starfaði í mörg ár hjá KPMG og var í hópi eigenda í
nokkur ár. ,,Ég fór þaðan árið 2008 til Avant þar sem ég starfaði
sem fjármálastjóri og svo til Landsbankans við sameiningu.
Ég var heimavinnandi með langveikt barn í nokkur ár en
nú eru allir hressir og finnst mér gott að fara aftur út á
vinnumarkaðinn. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er lifandi
og skemmtilegur vinnustaður og mér hefur verið vel tekið af
því góða fólki sem þar starfar,“ segir Hafdís.
Nýtt starfsfólk Fíh
Aðspurð um áhugamálin segir hún ferðalög heilla.
,,Fjölskyldan býr vítt og breytt um heiminn og ég hef sjálf
búið víða, bæði innanlands og erlendis. Meðal annars hef ég
verið með heimili á Jamaíka og í Nuuk. Ferðalög heilla mig
því, bæði þau sem ég fer í innra með mér og líka hin eiginlegu
ferðalög, þetta sameinaðist svo í göngu um Jakobsveginn.
Hann gekk ég, bæði í fríðu föruneyti Jakobína, sem og með
sjálfri mér hluta af leiðinni.“ Kristjana segist að lokum vera
mikil fjölskyldukona og njóti samvista með sínu fólki, hvort
sem er við eldhúsborðið eða á ferðalögum.
Og aðspurð hvað hún geri í frístundum segist hún hafa mikinn
áhuga á íþróttum. ,,Mér finnst sérstaklega gaman að horfa
á börnin mín keppa í fótbolta. Svo finnst mér mjög gaman
að ferðast og gott að geta farið að ferðast aftur erlendis eftir
tveggja ára heimsfaraldur. En mér finnst líka gott að vera
heima á Íslandi, sérstaklega yfir sumartímann, þá finnst mér
fátt betra en að dunda ég mér í garðinum heima í Garðabæ,“
segir Hafdís nýr fjármálastjóri félagsins.