Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 4
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Pistill ritstjóra
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Ritnefnd: Kristín Rósa Ármannsdóttir, Sölvi Sveinsson,
Þorgerður Ragnarsdóttir
Ritstjóri ritrýndra greina: Hrund Scheving Thorsteinsson
Ritnefnd ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir
Yfirlestur: Ragnheiður Linnet
Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir - sími 821 2755
Hönnun og umbrot: Þorbjörg Helga Ólafsdóttir
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
s. 540 6400
hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
facebook.com/hjukrun
hjukrun
Endilega fylgið okkur á samfélagsmiðlum
Skin og skúrir
og … haglél
Vorið er alveg að koma hugsaði ég með mér þegar ég sat í heita
pottinum með sólina í andlitið og hlustaði á gömul hjón sem sátu
við hliðina á mér skipuleggja páskafrí á Kanarí. Já, vonandi verður
þessi blessaði heimsfaraldur, sem hefur sett flest ferðaplön á bið,
til friðs. Loksins kemst lífið aftur á flug svo ferðaþyrstir, eins og
þessi öldruðu hjón í heita pottinum, geti flogið á vit langþráðra
sólarævintýra. Eftir sundsprett og sólbað með vorilm í lofti fór ég
upp úr lauginni og viti menn, þegar ég gekk út í bíl, kom haglél!
Snjóhvít og ísköld korn steyptu sér á ógnarhraða beint í andlitið
á mér, sem hafði verið í sólbaði nokkrum mínútum áður. Þetta er
víst ekki alveg búið; hvorki veturinn né faraldurinn en við fáum
stund milli stríða. Sólin lætur sjá sig, sumarið mun koma og veiran
sem setti heimsbyggðina á hliðina, í lengri tíma en nokkur átti von
á í upphafi, mun verða fjarlæg minning í framtíðinni. Faraldurinn
er svolítið eins og vorboðinn; sólin lætur sjá sig í smástund en
hverfur svo á bak við skýin og þá fer að haugrigna, snjó kyngir
niður eða haglél koma á ógnarhraða og lemja húsþök og nýböðuð
sólkysst andlit. Við höfum nokkrum sinnum þorað að vona að nú
sé COVID liðið hjá en þá kemur nýtt afbrigði eins og haglél eftir
sólbað í sundi, eða þá að smitin rjúka upp með tilheyrandi álagi á
heilbrigðisstarfsfólk og samfélagið í heild sinni.
Nei, veiran er svo sannarlega ekki fallin í gleymskunnar dá, það
veit ég vinnandi hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Flestir
eru margbólusettir og fæstir veikjast orðið alvarlega en staðan er
engu að síður þung á Landspítala. Fjölmargir eru enn að berjast
við veiruna, eða afleiðingar hennar og heilbrigðisstarfsfólk í
eldlínunni, er án nokkurs vafa, orðið langþreytt eftir mikið álag á
heilbrigðiskerfið síðan COVID skaut upp kollinum í Kína.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur er í skemmti-
legu og áhugaverðu viðtali þar sem hún segir meðal annars frá því
þegar hún heyrði fyrstu fréttirnar af COVID-19. Hún var í skíðaferð
á Ítalíu og var að drekka morgunkaffið sitt þegar samferðafólk
hennar fór að spyrja hana hvort það þyrfti að hafa áhyggjur af
þessari veiru, hún hélt nú ekki. Næstu daga fór fólk að ókyrrast
og svo vatt þetta heldur betur upp á sig og Ragnheiður, sem var á
þessum tíma nýlega tekin við starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar
hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðið í ströngu
við að skipuleggja sýnatökur og bólusetningar. Nú tveimur árum
síðar telur Ragnheiður faraldurinn vera á undanhaldi og að næsta
áskorun verði hversu fljótt við getum risið upp eftir þetta mikla
átak, það þurfi að hlúa að starfsfólkinu.
Það eru orð að sönnu, Ólafía Kvaran sem er einnig í viðtali í
blaðinu segir að markmið sitt sé að hafa heilsu til að takast á við
lífið, svo ég vitni beint í hennar orð; ,,ef maður er í góðu formi
ræður maður líka betur við erfiðleika sem koma upp í lífinu.
Ég fann það þegar maðurinn minn fór í hjartastopp um miðja
nótt heima hjá okkur fyrir nokkrum árum.“ Ólafía segir þessa
lífsreynslu hafa breytt hugsunarhætti sínum og lífsviðhorfi, hún sé
eftir þetta meðvituð um mikilvægi þess að hafa heilsu og að fá að
lifa hvern dag og njóta lífsins.
Og þegar öllu er á botninn hvolft er það mergurinn málsins eða
lífsins öllu heldur. Að hafa heilsu og að fá að njóta lífsins er það
dýrmætasta, hvort sem sólin skín eða gular viðvaranir eru í
kortunum.
Að endingu vil ég minnast á Rapportið sem er nýtt hlaðvarp Fíh
þar sem þáttastjórnendur fá til sín gesti úr röðum hjúkrunar-
fræðinga í einlægt spjall um lífið og tilveruna. Rapportið er á
Spotify og á heimasíðu félagsins, hjúkrun.is, er líka linkur á
Rapportið.
Gleðilega páska og njótið lífsins og vorsins sem er handan við
hornið.
Hlýjar kveðjur,