Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 94
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða virðingu
sem hluta af umönnun í heilbrigðisþjónustu með
áherslu á að lýsa leiðum sem hjúkrunarfræðingar
geta notað í daglegu starfi til að viðhalda og efla
virðingu sjúklinga.
Rýnirannsókn (e. Scoping studies). Leitað var í
gagnasöfnunum PubMed, Web of Science og Scopus
að efni frá 1997-2017. Leitarorðin voru: Dignity
in healthcare, dignity nursing, fostering dignity
(virðing í heilbrigðisþjónustu, virðing í hjúkrun, að
stuðla að virðingu).
Fjórtán greinar voru valdar í samantektina.
Tólf greinanna voru eigindlegar rannsóknir,
ein var fræðigrein og ein fræðileg samantekt/
hugtakagreining. Alls voru nefnd fimmtíu og
sjö þemu í niðurstöðum þessara fjórtán greina.
Þessi þemu voru borin saman og þau sem voru
lík flokkuðust saman í fjögur ný meginþemu:
Persónumiðuð hjúkrun; Eiginleikar í framkomu
hjúkrunarfræðinga; Samskipti og Umhverfi.
Að viðhalda og efla virðingu sjúklinga byggir á
framkomu hjúkrunarfræðinga og samskiptum sem
fela í sér að sjúklingi finnist að á hann sé hlustað og
tekið hafi verið tillit til hans sjónarmiða. Umhverfið
hefur einnig áhrif á virðingu, að aðbúnaður sé góður
og skilyrði séu fyrir næði.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Hjúkrunarfræðingar þurfa að ígrunda
hugsanir sínar, tilfinningar og framkomu í
daglegri umönnun til að geta viðhaldið virðingu
sjúklinga.
Hagnýting: Þegar hugað er að virðingu sjúklinga
finna þeir fyrir stjórn, sjálfstrausti og vellíðan.
Þekking: Hjúkrun sem viðheldur og eflir virðingu
er gefandi og veitir starfsánægju.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Virðing er ekki fólgin í því að koma fram við aðra
eins og maður vill láta koma fram við sjálfan sig,
heldur felur hún í sér að koma fram við aðra eins
og þeir vilja láta koma fram við sig.
Að efla virðingu í daglegri hjúkrun