Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 9
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 9
Ingibjörg fæddist 23. júní 1923 á Akureyri. Hún tók kennarapróf
frá Íþróttakennaraskóla Íslands og stundaði íþróttakennslu áður
en hún settist í Hjúkrunarskóla Íslands þá 34 ára gömul og lauk
þaðan prófi í maí 1961. Strax eftir útskriftina lá leið hennar aftur
til Akureyrar þar sem hún tók við stöðu hjúkrunarforstjóra við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þann 1. júní 1961 sem hún sinnti
í tíu ár. Veturinn 1964-1965 dvaldi hún í Danmörku og bætti við
sig námi í hjúkrunarkennslu og spítalastjórn við Sygeplejeskolen í
Árósum. Þar kynntist hún nýrri stétt sem kölluð var sygehjælpere
og starfaði á sjúkrahúsum. Eftir heimkomuna hóf Ingibjörg
baráttuna fyrir að sambærilegri menntun yrði komið á fót hér á
landi og í framhaldinu tók hún það að sér. Fyrstu nemendurnir
hér á landi hófu nám við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri haustið
1965 undir handleiðslu Ingibjargar og um vorið 1966 útskrifaðist
fyrsti hópurinn. Nefndi Ingibjörg þessa nýju stétt, sjúkraliða.
Fimm árum síðar, eða árið 1971, var Sjúkraliðaskóli Íslands
stofnaður.
Ingibjörg hafði alla tíð mikinn metnað fyrir hjúkrun og námi
hjúkrunarfræðinga. Hún var einn ötulasti talsmaður þróunar
hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem barðist
fyrir því að koma hjúkrunarfræðinámi í Háskóla Íslands. Þeirri
baráttu lauk með stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við
Háskóla Íslands árið 1973. Var hún einn af brautryðjendum
námsbrautarinnar og gegndi stöðu námsbrautarstjóra frá 1975-
1990.
Það lýsir vel huga Ingibjargar til þróunar hjúkrunarfræðinnar
og hjúkrunarfræðinga að hún hafði forgöngu að stofnun
Rannsóknarsjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur árið 2007.
Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunarfræði og
Minning
ljósmóðurfræði. Styrkir eru veittir til hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra í doktorsnámi vegna rannsóknarverkefna sem falla
að markmiðum sjóðsins. Sjóðurinn heyrir undir styrktarsjóði
Háskóla Íslands og hefur Ingibjörg styrkt sjóðinn í gegnum tíðina
með rausnarlegum fjárframlögum.
Forystukonur innan hjúkrunarstéttarinnar lögðu lengi að
stjórnvöldum að ráða hjúkrunarkonu til starfa í ráðuneyti
heilbrigðismála. Sumarið 1971 var orðið við þeim tilmælum
þegar Ingibjörg var ráðin í stöðu fulltrúa í nýstofnuðu ráðuneyti,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Fljótlega var
hún gerð að deildarstjóra, fyrst kvenna í slíkri stöðu innan
Stjórnarráðsins, sem síðar breyttist í skrifstofustjóra. Ingibjörg
starfaði þar í rúma tvo áratugi. Í störfum sínum í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu beitti hún sér fyrir margvíslegum
málum til að efla hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu í landinu.
Má þar nefna áhrif á lagasetningar um Hjúkrunarráð,
sjálfstæði hjúkrunarstéttarinnar og heilsugæslu og byggingu
heilsugæslustöðva á landsvísu. Þá sat hún í stjórnum
ýmissa heilbrigðisstofnana, skóla, nefnda og ráða á sviði
heilbrigðisþjónustunnar auk ritstarfa á því sviði.
Ingibjörgu var sýndur margvíslegur heiður fyrir störf sín á sviði
hjúkrunar og heilbrigðismála. Hún var sæmd riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu á nýársdag 1988 og verið heiðursfélagi frá 1989
í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar þakka Ingibjörgu R. Magnúsdóttur
störf hennar í þágu hjúkrunarfræðinga og þróunar og eflingu
hjúkrunarfræðinnar hér á landi. Blessuð sé minning hennar.
Ingibjörg Ragnheiður Magnúsdóttir, heiðursfélagi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, lést þann
20. janúar síðastliðinn. Með henni er genginn
atorkusamur brautryðjandi í hjúkrun á Íslandi.
Guðbjörg Pálsdóttir
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga