Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 19
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 19
HJÚKRU
N
AR
FR
Æ
ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM
Birgitta Rún Guðmundsdóttir
?
Erfitt að finna jákvæðari hjúkrunarfræðing
og kennara en Marianne Klinke
Nafn: 25 ára.
Stjörnumerki: Meyja
Á hvaða ári ertu í náminu?
Ég er á fjórða ári.
Hvers vegna valdir þú hjúkrunarfræði?
Ég valdi hjúkrunarfræði því mig hefur lengi langað til að verða ljósmóðir.
Ég kynntist svo hjúkrunarstarfinu betur þegar ég byrjaði að vinna á
hjúkrunarheimili þegar ég var 17 ára og þá var ekki aftur snúið.
Gætir þú hugsað þér að starfa sem hjúkrunarfræðingur erlendis í
framtíðinni?
Já, ég gæti hugsað mér að starfa erlendis. Mig hefur alltaf langað til að fara
út í hjálparstarf.
Skemmtilegasta fagið?
Örveru- og sýklafræði fannst mér virkilega skemmtilegt fag.
Erfiðasta fagið?
Lífeðlisfræði II, það flæktist eitthvað fyrir mér.
Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?
Hvað þessi tími hefur verið fljótur að líða og hversu mikið maður lærir í
klíníska náminu.
Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?
Nei, ekkert fag sem mér finnst vanta en það eru nokkur fög sem mér finnst
að hefði mátt fara betur í eins og til dæmis líffærafræði og áfanga um
samskipti.
Ætlar þú að fara í framhaldsnám?
Já, ég ætla í framhaldsnám í framtíðinni. Barnahjúkrun og ljósmóðurfræði
eru efst á lista eins og er.
Hressasti kennarinn?
Marianne Klinke, held það sé erfitt að finna jákvæðari hjúkrunarfræðing og
kennara en hana.
Eftirminnilegasta kennslustundin til þessa?
Herminám í bráðahjúkrun þar sem að kennararnir tóku hlutverk sitt sem
aðstandendur virkilega alvarlega.
Flottasta fyrirmyndin í faginu?
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, sérfræðingur í bráðahjúkrun. Hún er frábær
kennari og einnig hefur hún farið oft út í hjálparstarf og það er eitthvað
sem mig hefur langað til að gera og því vil ég nefna hana.
Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi?
Góð samskipti og góð nærvera.
Hvar langar þig helst að vinna að námi loknu?
Ég var svo heppin að fá vinnu á barnadeildinni á Barnaspítala Hringsins
eftir að ég kláraði þriðja árið og þar hef ég hugsað mér að vinna að loknu
námi.
Uppáhaldslæknadrama?
Grey‘s Anatomy hefur vinningin og The Good Doctor.
Besta ráðið við prófkvíða?
Sofa vel, halda rútínu, taka pásur og hreyfa sig.
Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman?
Kaffi og mikið af því.
Besta nestið?
Flatkökur og skyr verður mjög oft fyrir valinu.
Besta næðið til að læra?
Heima í stofu eða á Þjóðarbókhlöðunni.
Hvernig nærir þú andann?
Fer á æfingu, göngutúra þar sem ég hlusta á hlaðvörp og svo finnst mér
kvöldsund mjög slakandi og nærandi.
Líkamsrækt eða letilíf á frídögum?
Mér finnst alltaf gott að hreyfa mig svolítið fyrst og svo letilíf eftir það.
Þrjú stærstu afrek í lífinu?
Ég fór til Bretlands sem au pair í eitt ár. Ég var í landsliðúrvali unglinga
í áhaldafimleikum, klárað stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands og er
alveg að ljúka námi í hjúkrunarfræði þrátt fyrir að vera lesblind.
Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar?
Já, ég hef áhyggjur af hlýnun jarðar og öllu sem fylgir.
Hvað gerir þú til að sporna við gróðurhúsaáhrifum?
Ég reyni að nota bílinn minn sem minnst og kaupa frekar fjölnota vörur en
einnota.
Hvað gleður þig mest í lífinu?
Fjölskyldan mín. Einnig þakklæti foreldra barna sem ég hef sinnt í mínu
starfi og tilfinningin þegar maður veit að maður hefur hjálpað fólki á
erfiðum stundum, það er góð tilfinning.
Hvað hryggir þig helst?
Að það sé stríð í heiminum í dag og að ekki allir geti búið við ásættanlegar
aðstæður.
Uppáhaldsveitingastaður? Forréttabarinn.
Hvers saknaðir þú mest í heimsfaraldri?
Að geta ekki hitt allt fólkið mitt og að geta ekki farið til útlanda.
Fallegasta borg í heimi? Búdapest að sumri.
Besti bar fyrir hamingjustundir (happy hour)?
Petersen svítan á góðum sumardegi.
Falin perla í náttúru Íslands? Myrkárgil á Borgarfirði.
Besta baðið? Vök Baths.
Hvernig myndir þú lýsa þér í einni
setningu?
Ég myndi segja að ég væri jákvæð,
drífandi, mjög samviskusöm og taki
stundum kannski fullmikla ábyrgð á
öllum öðrum í kringum mig.
Að lokum hvað finnst þér
að stjórnvöld gætu gert til
að hvetja fleiri til að læra
hjúkrun? Gera vinnuumhverfi
hjúkrunarfræðinga meira
aðlaðandi og tala um starfið á
uppbyggilegri hátt.
Alveg að lokum hvað
finnst þér vanta í Tímarit
hjúkrunarfræðinga?
Það væri gaman að sjá
kannski einhverjar
sturlaðar
staðreyndir
um hjúkrun.
Hjúkrunarfræðineminn