Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 42
42 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Drifkrafturinn er hundarnir Á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut hefur hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða farið í reglulegar göngur með hundana sína. Elísabet Gerður Þorkelsdóttir er hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Hún svaraði nokkrum spurningum um hópinn. Hvernig og hvenær kom það til að þið ákváðuð að fara í göngur saman með hundana ykkar? Á deildinni hafa í gegnum tíðina verið virkir gönguhópar en þessir hópar höfðu reyndar legið í dvala í nokkur ár. Við erum margir hundaeigendur á deildinni og vorum oft að fara í göngur í hvert í sínu lagi. Við ákváðum svo árið 2018 skipuleggja reglulegar göngur með hundana okkar til þess að njóta félagsskapar hvert annars. Við stofnuðum þá spjallhóp á samfélagsmiðlum þar sem við skipulögðum hittinga og þannig fór boltinn að rúlla. Er hópurinn bara fyrir hundaeigendur? Nei, alls ekki, það eru allir á deildinni velkomnir með í göngur. Það hafa margir sem ekki eru hundaeigendur verið duglegir að koma með okkur. Það hefur meira að segja tekist að smita suma af hundabakteríunni í þessum göngum. En hundarnir eru samt drifkrafturinn í hópnum því þeir þurfa hreyfingu á hverjum degi og draga þannig okkur mannfólkið út að ganga. Hvernig er fyrirkomulagið á göngunum og hvað mæta margir? Það er engin föst regla á því hvenær við hittumst. Fyrirvarinn er oft stuttur og þetta eru ekki endilega langar göngur. Við höfum samt líka farið í lengri göngur saman. Það er allur gangur á því hve margir mæta, stundum erum við bara nokkur en það er alltaf jafngaman samt, hvort sem það eru margir eða fáir. Hundagöngur Hvert farið þið vanalega að ganga? Mest í nágrenni Reykjavíkur, til dæmis við Hádegismóa, Hólmsheiði og við Hafravatn. Við förum stundum á Esjuna og helstu fellin í kringum höfuðborgarsvæðið. Þá fórum við í tvær göngur á Hengilinn og höfum gengið nokkrum sinnum á Móskarðshnjúka. Svo er lengri ferð á langtímaplaninu hjá okkur. Það er líka gaman að segja frá því að með félagsskapnum höfum við náð að deila skemmtilegum göngusvæðum og gönguleiðum með hvert öðru. Hvað gefur þessi samveran utan vinnutíma ykkur? Göngurnar hafa bjargað geðheilsu starfsfólks í COVID- faraldrinum og þegar deildin er þung. Það er gott að fá stuðning frá hvert öðru en þetta er algjör streitulosun að fara saman út og það er líka svo gott og gaman að hitta vinnufélagana í öðru umhverfi en bara vinnunni. Við vinnum líka betur saman á vöktunum. Þá hefur þróast sterkari vinskapur og ný vinasambönd orðið til. Það er allur gangur á því hvað er rætt í göngunum, það er ekki allt vinnutengt en gjarnan eru erfiðar vaktir og atvik rædd og krufin. Texti: Sölvi Sveinsson / Myndir: Úr einkasafni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.