Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 53
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 53
að stuðningsaðili hafi ekki mátt vera viðstaddur fósturskimun
hafi skapað meiri ótta og kvíða hjá verðandi mæðrum og vakið
upp spurningar um öryggi þjónustunnar fyrir fæðingu (Davis-
Floyd o.fl., 2020).
Margir verðandi foreldrar höfðu áætlað að fara á fæðingar-
námskeið fyrir COVID-19 en hjá um 75% var námskeiðunum
aflýst sökum faraldursins. Um helmingi þeirra var boðið
fæðingarnámskeið á netinu í stað námskeiðsins sem átti að
vera á staðnum. Flestir verðandi foreldrar (93,2%) sögðust
frekar hafa kosið námskeið á staðnum en námskeið á netinu ef
það hefði staðið til boða (Burgess o.fl., 2021).
Brjóstagjöf
Mæður í Bretlandi sem eignuðust barn þegar samkomu-
takmarkanir voru sem mestar lýstu margar hverjar skorti
á stuðningi við brjóstagjöf. Skortur var á raunverulegri
aðstoð þar sem þær fengu hagnýt ráð um t.d. hvernig þær
ættu að leggja barnið á brjóst. Þær leituðu margar hverjar
eftir stuðningi frá fjölskyldu, vinum og mömmuhópum á
samfélagsmiðlum. Makar voru helstu stuðningsaðilar þeirra
(Vazquez-Vazquez o.fl., 2021).
Veiran sem veldur COVID-19 hefur fundist í sýnum brjósta-
mjólkur en óvíst er hvort smit berist til barns með mjólkinni.
Á sumum stöðum var haldið aftur af húð við húð snertingu
nýburans við foreldra, barn aðskilið frá móður og brjóstagjöf
ekki hafin hjá mæðrum með grun um eða staðfest smit vegna
hugsanlegs skaða sem það gæti valdið barninu (Souto o.fl.,
2020). Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur mælt með
því að konur sem eru með staðfest smit eða grun um smit
hefji eða haldi samt sem áður áfram brjóstagjöf. Hugsanlega
er brjóstagjöf verndandi þáttur fyrir barnið þar sem mótefni
í brjóstamjólk berast til barns. Kostir brjóstagjafar vega
verulega upp á móti mögulegu smiti til barns og því ætti ekki
að hætta brjóstagjöf ef mögulegt er (Kotlar o.fl., 2021).
Breyting á fjölskyldulífi
Vísbendingar eru um að þeir sem upplifa mikla umönnunar-
byrði, t.d. foreldrar, upplifa meiri og sterkari neikvæð
viðbrögð á tímum hamfara eins og heimsfaraldurs. Kvíði
og áfallastreita getur einnig aukist hjá umönnunaraðilum
þegar umönnunarbyrði eykst (Russell o.fl., 2020). Þegar
umönnunaraðilar takast á við aukna streitu verður andleg og
tilfinningaleg líðan þeirra fyrir miklum áhrifum. Það að annast
fjölskylduna verður þeim erfitt og foreldrar geta upplifað
þessar hindranir í foreldrahlutverkinu sem óyfirstíganlegar
(Prime o.fl., 2020).
Foreldrar móta sín eigin viðbrögð, hver þeirra bjargráð eru og
hvernig þau hlúa að sjálfum sér í erfiðum aðstæðum. Foreldrar
eru fyrirmyndir barna sinna og rannsóknir gefa til kynna að
þó að börn telja sig ekki verða fyrir eins miklum áhrifum
af erfiðleikum og foreldrar þeirra, upplifa þau álíka mikla
vanlíðan (Russell o.fl., 2020). Hræðsla foreldra getur smitað út
frá sér og börn verið sérstaklega næm á tilfinningalegt ástand
fullorðinna í kringum sig, sérstaklega foreldra sinna (Imran
o.fl., 2020). Streita og álag foreldra á hamfaratímum getur
magnað upp umönnunarbyrði og andleg einkenni, sem gæti
haft áhrif á samband foreldra og barna (Russell o.fl., 2020).
Að vera foreldri er streituvaldandi við venjulegar kringum-
stæður. COVID-19 faraldurinn hefur leitt til aukinnar streitu
hjá almenningi sem er greinilegri hjá foreldrum en öðrum
fullorðnum sem ekki eiga börn. Á tímum faraldursins gripu
margir skólar og daggæslur til þess ráðs að loka. Skólastarf
færðist heim og börnin voru mun meira heima (Russell o.fl.,
2020). Faraldurinn og breytingarnar sem urðu á daglegu lífi
höfðu meiri áhrif á feður en mæður. Þeir sem glímdu við
fjárhagserfiðleika lýstu einnig meiri umönnunarbyrði og
geðrænum einkennum (Russell o.fl., 2020). Streita tengd
faraldrinum getur hafa aukist hjá fjölskyldum barna með
sérþarfir og krefjandi hegðunarvandamál vegna þess að
stuðningur sem þær nutu fyrir var skertur (Prime o.fl., 2020).
Foreldrar þurftu margir hverjir að vinna heima á tímum
COVID-19 og börnin einnig þegar skólar lokuðu. Það að
sinna bæði vinnu og börnum, jafnvel í sama rými, þessar
aðstæður gátu haft hindrandi áhrif á afköst foreldra í vinnunni
(Waizenegger o.fl., 2020).
Hlutverk hjúkrunarfræðinga
COVID-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á störf heilbrigðis-
starfsfólks. Heilbrigðiskerfið hefur þurft að takast á við
margvíslegar áskoranir út um allan heim. Í faraldrinum hafa
hjúkrunarfræðingar staðið frammi fyrir aðstæðum sem
ógna heilsu þeirra, vellíðan og getu til að sinna starfi sínu.
Hjúkrunarfræðingar hafa upplifað örmögnun, líkamleg
óþægindi í kjölfar langra vinnudaga í hlífðarbúnaði, hræðslu
við að smitast og tilfinningalega vanlíðan. Þessir álagsþættir
eru viðbót við álag í störfum hjúkrunarfræðinga sem var ærið
fyrir (Arnetz o.fl., 2020).
Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í forvörnum
gegn COVID-19 og viðbrögðum við faraldrinum. Þeir veita
sjúklingum persónulega hjúkrun og innleiða heilsuseflingar-
áætlanir og forvarnir í samfélaginu og fyrir aðra heilbrigðis-
starfsmenn. Heimsfaraldur krefst virkrar þátttöku hjúkrunar-
fræðinga bæði við umönnun, við heilbrigðisfræðslu og miðlun
lýðheilsuupplýsinga til samfélagsins á tímum COVID-19.
Hjúkrunarfræðingar veita sjúklingum, fjölskyldum og
almenningi upplýsingar um faraldurinn, biðla til almennings
um að fylgja tilmælum heilbrigðisyfirvalda og stuðla að
aðgerðum til að koma í veg fyrir ný smit. Leiðtogar í hjúkrun
eru enn fremur ábyrgir fyrir því að veita hjúkrunarfræðingum
uppfærðar upplýsingar reglulega varðandi verklagsreglur um
vinnuvernd (Bolina o.fl., 2020).
Hjúkrunarfræðingar veita foreldrum í barneignarferlinu
mikilvægan stuðning. Þeir hafa þekkingu og færni til að styðja
við nýja foreldra í þeirra hlutverki með notkun gagnreyndar
þekkingar og starfshátta. Þarfir nýrra foreldra eru mismunandi
og því þarf að aðlaga heilbrigðisþjónustu að þeirra óskum og
hjúkrunarfræðingar þurfa að meta gagnrýnið hvað á við hverju
sinni. Hjúkrunarfræðingar ættu að leiðbeina nýjum foreldrum
og benda á úrræði sem standa þeim til boða ef þeir standa
frammi fyrir erfiðleikum t.d. eins og svefnráðgjöf (Gilmer o.fl.,
2016).
Það er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sem veitir nýjum
foreldrum þjónustu hafi getu til að bregðast hratt og
örugglega við nýjum aðstæðum. Fyrstu mánuðir COVID-19
leiddu í ljós að þjónusta við nýbakaða foreldra var ábótavant
Fræðslugrein