Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 4
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Pistill ritstjóra Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Ritnefnd: Kristín Rósa Ármannsdóttir, Sölvi Sveinsson, Þorgerður Ragnarsdóttir Ritstjóri ritrýndra greina: Hrund Scheving Thorsteinsson Ritnefnd ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir, Þorbjörg Jónsdóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir Yfirlestur: Ragnheiður Linnet Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir - sími 821 2755 Hönnun og umbrot: Þorbjörg Helga Ólafsdóttir Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík s. 540 6400 hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga facebook.com/hjukrun hjukrun Endilega fylgið okkur á samfélagsmiðlum Skin og skúrir og … haglél Vorið er alveg að koma hugsaði ég með mér þegar ég sat í heita pottinum með sólina í andlitið og hlustaði á gömul hjón sem sátu við hliðina á mér skipuleggja páskafrí á Kanarí. Já, vonandi verður þessi blessaði heimsfaraldur, sem hefur sett flest ferðaplön á bið, til friðs. Loksins kemst lífið aftur á flug svo ferðaþyrstir, eins og þessi öldruðu hjón í heita pottinum, geti flogið á vit langþráðra sólarævintýra. Eftir sundsprett og sólbað með vorilm í lofti fór ég upp úr lauginni og viti menn, þegar ég gekk út í bíl, kom haglél! Snjóhvít og ísköld korn steyptu sér á ógnarhraða beint í andlitið á mér, sem hafði verið í sólbaði nokkrum mínútum áður. Þetta er víst ekki alveg búið; hvorki veturinn né faraldurinn en við fáum stund milli stríða. Sólin lætur sjá sig, sumarið mun koma og veiran sem setti heimsbyggðina á hliðina, í lengri tíma en nokkur átti von á í upphafi, mun verða fjarlæg minning í framtíðinni. Faraldurinn er svolítið eins og vorboðinn; sólin lætur sjá sig í smástund en hverfur svo á bak við skýin og þá fer að haugrigna, snjó kyngir niður eða haglél koma á ógnarhraða og lemja húsþök og nýböðuð sólkysst andlit. Við höfum nokkrum sinnum þorað að vona að nú sé COVID liðið hjá en þá kemur nýtt afbrigði eins og haglél eftir sólbað í sundi, eða þá að smitin rjúka upp með tilheyrandi álagi á heilbrigðisstarfsfólk og samfélagið í heild sinni. Nei, veiran er svo sannarlega ekki fallin í gleymskunnar dá, það veit ég vinnandi hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Flestir eru margbólusettir og fæstir veikjast orðið alvarlega en staðan er engu að síður þung á Landspítala. Fjölmargir eru enn að berjast við veiruna, eða afleiðingar hennar og heilbrigðisstarfsfólk í eldlínunni, er án nokkurs vafa, orðið langþreytt eftir mikið álag á heilbrigðiskerfið síðan COVID skaut upp kollinum í Kína. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur er í skemmti- legu og áhugaverðu viðtali þar sem hún segir meðal annars frá því þegar hún heyrði fyrstu fréttirnar af COVID-19. Hún var í skíðaferð á Ítalíu og var að drekka morgunkaffið sitt þegar samferðafólk hennar fór að spyrja hana hvort það þyrfti að hafa áhyggjur af þessari veiru, hún hélt nú ekki. Næstu daga fór fólk að ókyrrast og svo vatt þetta heldur betur upp á sig og Ragnheiður, sem var á þessum tíma nýlega tekin við starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðið í ströngu við að skipuleggja sýnatökur og bólusetningar. Nú tveimur árum síðar telur Ragnheiður faraldurinn vera á undanhaldi og að næsta áskorun verði hversu fljótt við getum risið upp eftir þetta mikla átak, það þurfi að hlúa að starfsfólkinu. Það eru orð að sönnu, Ólafía Kvaran sem er einnig í viðtali í blaðinu segir að markmið sitt sé að hafa heilsu til að takast á við lífið, svo ég vitni beint í hennar orð; ,,ef maður er í góðu formi ræður maður líka betur við erfiðleika sem koma upp í lífinu. Ég fann það þegar maðurinn minn fór í hjartastopp um miðja nótt heima hjá okkur fyrir nokkrum árum.“ Ólafía segir þessa lífsreynslu hafa breytt hugsunarhætti sínum og lífsviðhorfi, hún sé eftir þetta meðvituð um mikilvægi þess að hafa heilsu og að fá að lifa hvern dag og njóta lífsins. Og þegar öllu er á botninn hvolft er það mergurinn málsins eða lífsins öllu heldur. Að hafa heilsu og að fá að njóta lífsins er það dýrmætasta, hvort sem sólin skín eða gular viðvaranir eru í kortunum. Að endingu vil ég minnast á Rapportið sem er nýtt hlaðvarp Fíh þar sem þáttastjórnendur fá til sín gesti úr röðum hjúkrunar- fræðinga í einlægt spjall um lífið og tilveruna. Rapportið er á Spotify og á heimasíðu félagsins, hjúkrun.is, er líka linkur á Rapportið. Gleðilega páska og njótið lífsins og vorsins sem er handan við hornið. Hlýjar kveðjur,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.