Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 8
8 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Nýr sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs Hafdís Böðvarsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Fíh Kristjana Elísabet Guðlaugsdóttir hefur verið ráðin sviðs- stjóri kjara- og réttindasviðs Fíh. Kristjana er með BSc í viðskiptafræði og meistaranám í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. ,,Ég þekki vel til ýmissa verkefna kjara- og réttindasviðs, hef meðal annars sótt námskeið í jafnlaunavottun og verið við innleiðingu betri vinnutíma, bæði hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands,“ segir Kristjana sem hefur starfað við mannauðstengd mál í hartnær 20 ár. ,,Lengst af var áherslan fyrst og fremst á réttindamál starfsmanna, síðari ár hef ég unnið sem starfsmannastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og mannauðsstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Ég þekki vel starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga, hef tekið þátt í gerð stofnanasamninga, bæði við Fíh, fyrir hönd stofnunar sem og við önnur stéttar- félög. Ég brenn fyrir mannauði stofnana og fyrirtækja og því er frábært að fá tækifæri til að sinna því hugðarefni með beinum hætti með öðrum frábæru starfsmönnum Fíh,“ segir Kristjana hress í bragði. Hafdís Böðvarsdóttir er nýr fjármálastjóri Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún ólst upp á Akranesi og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hafdís lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og prófi til löggildingar í endurskoðun árið 1997. Hafdís starfaði í mörg ár hjá KPMG og var í hópi eigenda í nokkur ár. ,,Ég fór þaðan árið 2008 til Avant þar sem ég starfaði sem fjármálastjóri og svo til Landsbankans við sameiningu. Ég var heimavinnandi með langveikt barn í nokkur ár en nú eru allir hressir og finnst mér gott að fara aftur út á vinnumarkaðinn. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er lifandi og skemmtilegur vinnustaður og mér hefur verið vel tekið af því góða fólki sem þar starfar,“ segir Hafdís. Nýtt starfsfólk Fíh Aðspurð um áhugamálin segir hún ferðalög heilla. ,,Fjölskyldan býr vítt og breytt um heiminn og ég hef sjálf búið víða, bæði innanlands og erlendis. Meðal annars hef ég verið með heimili á Jamaíka og í Nuuk. Ferðalög heilla mig því, bæði þau sem ég fer í innra með mér og líka hin eiginlegu ferðalög, þetta sameinaðist svo í göngu um Jakobsveginn. Hann gekk ég, bæði í fríðu föruneyti Jakobína, sem og með sjálfri mér hluta af leiðinni.“ Kristjana segist að lokum vera mikil fjölskyldukona og njóti samvista með sínu fólki, hvort sem er við eldhúsborðið eða á ferðalögum. Og aðspurð hvað hún geri í frístundum segist hún hafa mikinn áhuga á íþróttum. ,,Mér finnst sérstaklega gaman að horfa á börnin mín keppa í fótbolta. Svo finnst mér mjög gaman að ferðast og gott að geta farið að ferðast aftur erlendis eftir tveggja ára heimsfaraldur. En mér finnst líka gott að vera heima á Íslandi, sérstaklega yfir sumartímann, þá finnst mér fátt betra en að dunda ég mér í garðinum heima í Garðabæ,“ segir Hafdís nýr fjármálastjóri félagsins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.