Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 30
28 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Dagur byltuvarna
Veglegt og vel sótt málþing á Reykjavík Natura hótelinu
Alþjóðlegur dagur byltuvarna er haldinn
22. september á hverju ári til að vekja athygli
á mikilvægi virkra byltuvarna og draga fram þá
þekkingu sem er til staðar á þeim. Á Landspítala
hefur þessi dagur verið haldinn með ýmsu sniði
síðustu fjögur árin en eðli málsins samkvæmt fór
lítið fyrir honum síðustu tvö árin. Í vor var tekin
sú ákvörðun í byltuvarnarteymi Landspítala að
kominn væri tími til að halda veglegt málþing og
fá fleiri til samstarfs til að leggja grunn að auknu
samstarfi fagaðila.
Rannsóknarstofur Landspítala og Háskóla Íslands
í bráða- og öldrunarfræðum, Þróunarmiðstöð
íslenskrar heilsugæslu, Sjúkrahúsið á Akureyri,
Öldrunarfræðafélagið og Beinvernd áttu öll fulltrúa
í undirbúningsnefnd málþingsins. Dagskráin var
fjölbreytt og áhugaverð. Landlæknir setti þingið og
lýsti ánægju með þá athygli sem þessi mikilvægi
málaflokkur fékk þennan dag.
Dagur byltuvarna
Öldrunarlæknar með áralanga reynslu voru
lykilfyrirlesarar
Lykilfyrirlesarar voru tveir, annar frá Hollandi og
hinn frá Bretlandi, báðir fluttu fyrirlestra sína um
fjarfundarbúnað. Þeir eru öldrunarlæknar með
áralanga reynslu af rannsóknum á íhlutunum í
byltum og byltuvörnum. Dr. Nathalie von der Velde
lagði áherslu á mikilvægi góðrar lyfjayfirferðar
til að greina hvort sjúklingar séu að taka lyf sem
geta aukið byltuhættu. Dr. Finbarr Martin sagði frá
vinnu við nýjar alþjóðlegar klínískar leiðbeiningar
í byltuvörnum sem kynntar voru í lok september.
Hann lagði á það ríka áherslu að stuðst væri við
gagnreynda þekkingu við byltuvarnir og minnti á að
ekki væri til nein töfralausn gegn byltum. Teymi um
heilsueflandi móttökur hjá Þróunarmiðstöð sagði
frá nýju verklagi í byltuvörnum sem er í þróun og
verður innleitt fljótlega á öllum heilsugæslustöðvum.
Sagt var frá verkefnum um byltuvarnir á Landspítala,
fyrirbyggjandi æfingum til varnar byltum fyrir
skjólstæðinga þjónustumiðstöðva í Reykjavík og
þjónustu byltu- og beinverndarmóttöku á Landakoti.
Auk þess voru kynnt nokkur rannsóknarverkefni.