Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 40
38 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Kvenheilsuteymi
Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Konur sem sinna konum
Nýstofnað kvenheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins samanstendur af fjórum vöskum konum
með víðtæka reynslu þegar kemur að heilsu
kvenna en það eru þær Sólrún Ólína Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur, Erla Gerður Sveinsdóttir,
heimilislæknir og stofnandi Heilsuborgar, Steinunn
Zóphaníasdóttir ljósmóðir og Sigrún Hjartardóttir
kvensjúkdómalæknir.
Bæði Sólrún og Steinunn hafa tekið námskeið í
getnaðarvörnum, diplómanám í kynheilbrigði
og meistarapróf í heilbrigðisvísindum og gerðu
báðar verkefni um breytingaskeið kvenna. Einnig
kom Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, sérnámslæknir í
kvensjúkdómum, að þróunarvinnu þegar teymið hóf
störf.
Aukin þjónusta við konur
Tilgangur teymisins er bætt þjónusta við konur.
Þjónustan er sértæk að því leyti að áhersla er lögð
á þá sjúkdóma sem eingöngu konur geta fengið.
Að sögn Erlu Gerðar er af nógu að taka. „Við höfum
svolítið valið áherslupunktana og þessi vinna hingað
til hefur farið í það horfa á breiddina og forgangsraða
og ákveða hvað við byrjum með. Við erum að
bæta þjónustuna fyrir konur með það sem herjar
sérstaklega á konur, sem hefur verið sett til hliðar í
kerfinu.“
Þörfin á þessari nýju þjónustu sést greinilega.
Erla Gerður segir að þjónustan sé hugsuð sem
viðbótarþjónusta við fyrsta stigs þjónustu sem er
nú til staðar í hefðbundinni heilsugæslu enda sé sú
þjónusta ekki að breytast eða skerðast að neinu leyti.
Þjónusta teymisins sé viðbót og felst í aukinni
fræðslu, auk þess sem veitt er annars stigs þjónusta
í ákveðinn tíma, að henni lokinni getur konan
útskrifast yfir í langtímaeftirlit í sinni heilsugæslu.
„Ef kona þarf meiri þjónustu, hvað varðar
getnaðarvarnir, viðtöl eða annað sem þarf að skoða
meira, þá erum við til þjónustu reiðubúnar. Einnig
munum við setja upp lykkju og staf sem er ekki gert
á öllum heilsugæslum. Við sjáum um að veita góða
fræðslu og setjum einnig fræðslu á netið og viljum að
konur komi vel upplýstar í viðtöl,“ segir Erla Gerður.
Fræðsla á netinu og hópnámskeið um
breytingaskeiðið
Hvað varðar breytingaskeiðið þá hefur verið skortur
á fræðslu að sögn Erlu Gerðar, en nú er komin
fræðsla inn á vef Heilsuveru. Einnig munu konur geta
komið til teymisins og fengið enn meiri fræðslu og
upplýsingar um hvaða meðferðir eru í boði.
Fyrir um rétt rúmu ári fór Heilbrigðisráðuneytið þess á leit við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins að hún myndi taka að sér að halda utan um málefni er
varða heilsu kvenna. Voru fjórir áherslupunktar lagðir til grundvallar en þeir voru
breytingaskeiðið, getnaðarvarnaráðgjöf, afleiðingar áfalla og ofbeldis gegn konum
og aðrir sjúkdómar er hrjá konur. Brást heilsugæslan vel og hratt við beiðninni og
voru kallaðir til sérfræðingar sem hafa sinnt heilsu kvenna í áraraðir.
Viðtal og myndir: Þórunn Sigurðardóttir
Viðtal