Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 42
40 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Aðrir sjúkdómar
Hvað varðar aðra sjúkdóma þá valdi teymið
sjúkdóma sem það taldi vera lítið sinnt og fyrir
valinu urðu fjölblöðrueggjastokkaheilkenni og
fitubjúgur. „Eins og nafnið gefur til kynna þá er
fjölblöðrueggjastokkaheilkenni heilkenni, þetta
er ekki bundið við eitthvert eitt líffæri eða kerfi
heldur hefur áhrif á alla þætti heilsunnar. Til að
mynda eru meiri líkur á sykursýki, hjartasjúkdómum
o.fl. sjúkdómum ef kona er með þetta heilkenni
og því skiptir miklu máli að greina og veita rétta
meðhöndlun fyrir heilsufar og líðan alla tíð,“ segir
Erla Gerður.
Fitubjúgur var valinn vegna þess að hann veldur oft
mikilli andlegri vanlíðan því konur fitna án tillits til
mataræðis og hreyfingar og getur myndast erfitt
samband við mat, því fitusöfnun hjá þessum konum
er mjög hormónatengd og oft ruglað saman við
offitu. Þetta hefur áhrif á líkamsmyndina og það
þarf ekki að gerast ef konur skilja hvað er í gangi
og átta sig á hverju þær stjórna og hverju ekki. Erla
Gerður hefur unnið með offitu í mörg ár í Heilsuborg
og hefur mikla reynslu á því sviði. „Maður læknar
hvorugan sjúkdóminn, þeir eru ævilangir en með því
að meðhöndla þá rétt og styðja við þá er hægt að
bæði gjörbreyta heilsufari og líðan,“ segir hún.
Viðtal
„Eitt af því sem við
sjáum fyrir okkur að
geta gert er að vera í
ráðgjafarhlutverki fyrir
heilbrigðisstarfsfólk.“
Fræðsla og stuðningur við heilbrigðisstarfsfólk
Hluti af framtíðarsýn kvenheilsuteymisins er að veita
fræðslu, stuðning og ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks
sem sinnir kvenheilsu. „Eitt af því sem við sjáum fyrir
okkur að geta gert er að vera í ráðgjafarhlutverki
fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Sá sem er með einstakling
í meðferð, langtímaeftirliti, þurfi þá ekki að senda
hann alltaf frá sér heldur komist lengra með góðum
leiðbeiningum,“ segir Erla Gerður og bætir við
„þannig verður heilbrigðisstarfsfólk öruggara og
kemst lengra í sínu starfi.“