Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 47
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 45
Orri Halldórsson
HJÚKRU
N
AR
FR
Æ
ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM
?
Fann sig ekki í viðskiptafræði og fór í hjúkrun
Hjúkrunarfræðineminn
Á hvaða ári ertu í náminu?
Ég var að byrja á þriðja ári.
Hafðir þú lengi stefnt að því að læra
hjúkrunarfræði eða varstu að íhuga
eitthvert annað nám?
Ég prófaði fyrst að fara í viðskiptafræði en
fann að það hentaði mér ekki svo að ég ákvað
að skella mér í hjúkrun þar sem ég hafði alltaf
haft augastað á því námi.
Hvers vegna valdir þú að nema hjúkrun á
Akureyri?
Ég á heima á Akureyri og því lá það beinast
við.
Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið
erlendis í framtíðinni?
Nei, ég elska Akureyri og er mjög heimakær
þannig ég gæti ekki hugsað mér að fara
héðan.
Skemmtilegasta fagið?
Hjúkrunarfræðiáfangarnir finnst mér
skemmtilegastir.
Erfiðasta fagið?
Lífeðlisfræði.
Eitthvað sem hefur komið á óvart í
náminu?
Hvað námið er mun skemmtilegra en ég átti
von á.
Eitthvert fag sem þér finnst vanta í
námið?
Ekkert sem mér dettur í hug, kannski
inngangur að sálgæslu.
Ætlar þú að fara í framhaldsnám?
Já, en ég hef ekki ákveðið hvað verður fyrir
valinu, það er svo margt sem mér finnst vera
mjög spennandi.
Hressasti kennarinn?
Erfitt að gera upp á milli en Hafdís
Hafþórsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur
vinninginn.
Eftirminnilegasta kennslustundin til
þessa?
Allir verklegu tímarnir í hjúkrunarfræði-
áföngunum eru mjög eftirminnilegir.
Flottasta fyrirmyndin í faginu?
Amma mín heitin, Jóna Fjalldal, er mín
fyrirmynd.
Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í
starfi?
Einlægni, vandvirkni og jákvæðni.
Hvar langar þig helst að vinna að námi
loknu?
Mig langar að vinna á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Ég er að vinna með skólanum á
lyflækningadeild og líkar mjög vel þar.
Besta ráðið við prófkvíða? Ég er enn að
leita að besta ráðinu.
Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt
saman?
Koffínvatn og kók.
Besta næðið til að læra?
Bókasafnið í skólanum.
Hvernig nærir þú andann?
Í golfi og með því að fara út að hlaupa.
Líkamsrækt eða letilíf á frídögum?
Alltaf letilíf.
Þrjú stærstu afrek í lífinu?
Að hafa nælt mér í kærustuna mína fyrir tíu
árum, standa mig vel í klásus og kaupa íbúð.
Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar?
Já, mjög miklar.
Hvað gerir þú til að sporna við
gróðurhúsaáhrifum?
Ég seldi bílinn minn og ferðast þess í stað
mikið um á rafhlaupahjóli þegar veður leyfir
og flokka rusl en ég gæti klárlega lagt meira af
mörkunum.
Hvað gleður þig mest í lífinu?
Stella, níu mánaða dóttir mín.
Hvað hryggir þig helst?
Að föðurfjölskyldan mín skuli búa í Danmörku.
Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að
læra hjúkrun?
Ég er ekki viss en það hjálpar að auka
sýnileika karlmanna í hjúkrun.
Hvernig myndir þú lýsa þér í einni
setningu?
Fjölskyldufaðir sem elskar að spila golf.
Hvernig nemandi ertu?
Frestari.
Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld
gætu gert til að hvetja fleiri til að læra
hjúkrun?
Ég myndi halda að það væri góð byrjun að
hleypa fleirum í gegnum klásus.
Aldur
27 ára
Stjörnumerki
Bogmaður