Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 53
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 51
Hverjar hafa verið stærstu áskoranirnar á þessari
vegferð að gera spítalann umhverfisvænni?
Það getur verið erfitt að minnka sóun og notkun á
einnota vörum. Við erum nýkomin úr heimsfaraldri
þar sem notkun á einnota hlutum var gríðarlega
mikil um allan heim og þá sást vel hversu flókið
það getur verið að samræma sýkingarvarnir og
umhverfisvernd. Hanskanotkun fór til að mynda alveg
úr böndunum en hanskar geta gefið falskt öryggi,
handþvottur er alltaf bestur en stundum er auðvitað
nauðsynlegt að nota hanska. Við vorum með átak í
samstarfi við erlenda spítala í því að minnka sóun
og notkun á einnota hlutum. Þetta er ákveðin glíma
og hjúkrunardeildarstjórar koma þar sterkir inn því
þeir búa til ákveðna menningu á sinni deild í þessum
efnum. Það er alltaf hægt að gera betur.
Við erum með Svansvottað eldhús og matsali og
höfum flokkað lífrænan úrgang í 10 ár. Erum með
margnota matarbakka en í faraldrinum þurftum við
að nota einnota matarbakka. Umhverfismálin voru
ekki brennidepli í COVID-19, við héldum þó dampi að
vissu leyti og ein góð aukaverkun var færri flug- og
ökuferðir. Flugferðum fækkaði til að mynda um 90%.
Fjarfundir tóku við að miklu leyti og við sáum það að
hægt er að draga úr kolefnisspori með fjarfundum
og -ráðstefnum, þetta er hægt og samtakamátturinn
getur haft mikið að segja.
Við höfum til að fá betri sýn gert tékk með því að
safna saman úrgangi og fara í gegnum hann; hvað
er notað og hvað er sóun. Við sjáum að það er alltaf
hægt að gera betur og það er líka mikilvægt að vera
stöðugt að minna á að minnka sóun. Starfsfólk kemur
oft með hugmyndir um hvernig við getum gert betur,
til dæmis komu starfsmenn með athugasemd við það
að ávextir komu í plastpokum, þetta var óþarfi og nú
koma ávextirnir til okkar í margnota kössum. En þar
sem starfmannaveltan er mikil á stórum spítala þarf
stöðugt að vera að minna á og stundum líður mér
eins og gamalli rispaðari plötu þar sem ég er alltaf að
tala um sömu hlutina sem umhverfisstjóri spítalans.
Það þarf ekki alltaf að vera að finna upp hjólið í
þessum efnum, við erum í góðu samstarfi við erlenda
spítala og höfum við getað innleitt margar aðgerðir
sem hafa virkað vel annars staðar. Lausnir sem búið
er að prófa og virka líka hjá okkur þótt oft þurfi að
aðlaga þær að okkar umhverfi.
Viðtal
Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisstjóri Landspítala, hjólar í
vinnuna flesta daga.
Aldur og áhugamál
51 árs, helstu áhugamál eru útvist, lestur og barnabarnið
sem er á öðru ári.
Menntun
Ég útskrifaðist árið 1996 með BS úr líffræði, ég byrjaði
aðeins í gróðurrannsóknum eftir útskrift en fór svo
fljótlega út í umhverfismálin, starfaði hjá Hafnarfjarðarbæ
og ákvað svo að skella mér erlendis í meistaranám. Ég
tók meistaragráðu í umhverfisstjórnun, með áherslu á
samfélagsábyrgð, frá Viðskiptaháskólanum í Gautaborg.