Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 54
52 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Hvað með aðrar heilbrigðisstofnanir, til að
mynda á landsbyggðinni, ert þú í samstarfi
við landsbyggðina varðandi að innleiða
umhverfisstefnur?
Þær hafa leitað til okkar að einhverju leyti. Við
erum nú að innleiða ný föt, blá og hvít með
bættara sniði sem verða til að mynda tekin upp
á fleiri heilbrigðisstofnunum en þau eru úr tensel
og endurunnu pólýester. Í bláu fötunum er notað
tencel sem er mun umhverfisvænna en bómull en
við framleiðslu á henni er mikil notkun vatns og
varnarefna eins og skordýraeiturs. Tencel er auk þess
liprara og þægilegra efni.
Fjarvinnustefna er í býgerð hér eins og á mörgum
öðrum stofnunum, þeir sem geta og vilja munu þá
geta gert samkomulag um ákveðinn fjölda daga í
fjarvinnu sem er sparnaður í ferðum en þetta er í
farvegi og ekki samþykkt enn þá.
Hvernig sérðu framtíðina hvað varðar
umhverfismálin?
Ef við værum ekkert búin að gera í umhverfismálum
værum við í verri málum en við erum í dag. Ég
verð vör við það að yngra fólkið gerir meiri kröfur
um að umhverfismálin séu í lagi. Nú er ég amma
og árið 2041 verður barnabarnið mitt tvítugt, ég
held við höfum gott að því að leiða hugann að því
hvernig við erum að skila jörðinni af okkur fyrir
komandi kynslóðir. Mér finnst ekki langt síðan árið
Viðtal
Landspítalinn lét gera umhverfisúttekt árið 2011, árið
2012 var fyrsti umhverfisstjórinn ráðinn og sama ár
var umhverfisstefna samþykkt þar sem segir að áhersla
sé lögð á þá þætti starfseminnar sem hafa mest áhrif
á umhverfið og fela í sér bestu tækifærin til að bæta
umhverfi, efnahag og heilsu. Landspítali ætli að:
• hanna og skipuleggja umhverfisvænar byggingar til
framtíðar.
• draga úr myndun úrgangs og auka endurvinnslu og
endurnýtingu.
• minnka sóun á magnvörum, m.a. einnota vörum og
matvælum.
• kaupa vörur og þjónustu sem uppfylla þarfir,
hafa sem minnst umhverfisáhrif og lægstan
líftímakostnað.
• halda umhverfisáhrifum í lágmarki vegna notkunar á
varasömum efnum, lyfjum og lyfjagösum.
• hvetja til notkunar á vistvænum og heilsusamlegum
samgöngumátum í ferðum og flutningum á vegum
spítalans.
• nota hreina orku og vatn og nýta vel.
• efla þróun þekkingar um umhverfismál með miðlun
upplýsinga, fræðslu, rannsóknum og samstarfi við
hagsmunaaðila.
Umhverfisstefna Landspítalans
„Við höfum einnig verið að
byggja upp aðstöðu fyrir
hjól og svo erum við að
laga búningsaðstöðu. “