Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 55
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 53
Umhverfiskvíði er víðtækari útgáfan
af loftslagskvíða og nær yfir fleiri
umhverfismál en þau sem tengjast
loftslagsbreytingum. Á vef Landverndar
segir að rúmlega 20% landsmanna
finni fyrir umhverfiskvíða. Ungt fólk
sé í meirihluta þeirra sem finna fyrir
umhverfiskvíða, eða um 35% ungs
fólks. Þar segir einnig að aðeins 6%
Íslendinga hafa engar áhyggjur af
loftslagsbreytingum en aðrir hafa litlar,
þó nokkrar eða miklar áhyggjur.
Umhverfiskvíði
Viðtal
2000 var en það er jafnlangt í árið 2044, þetta líður
ískyggilega hratt, staðan er þannig að við þurfum
að skrúfa fyrir allt sem við getum skrúfað fyrir. Við
þurfum að minnka sóun umtalsvert, fækka ferðum
sem menga og vanda okkur við að flokka allt sem
við getum. Fagstéttir þurfa að huga að sínu og velta
fyrir sér hvort það sé til umhverfisvænni leið en farin
er núna. Er þörf á öllu sem verið er að nota, getum
við sleppt einhverju eða tekið upp eitthvað nýtt og
umhverfisvænna. Þarna liggja tækifæri til að læra
hvert af öðru og á milli deilda og einnig af öðrum
spítölum hér heima og erlendis. Bara það að setja
kröfur í útboðum á innkaupum getur skipt gríðarlega
miklu máli, til dæmis að það séu ekki ákveðin skaðleg
efni í hjúkrunarvörum sem eru keyptar inn. Það geta
verið hormónatruflandi og krabbameinsvaldandi efni
í vörum sem skýtur skökku við á heilsustofnun.
Af hverju eru sumir mun virkari í umhverfisvænum lífsstíl en aðrir, hvað
veldur og hvaða þættir hafa þar áhrif?
Þetta er margþætt, við sem erum miðaldra erum hluti af neyslusamfélaginu, eldra
fólk og kynslóðirnar á undan kunnu að fara vel með hluti og nýta. Núna búum við
í neyslusamfélagi en við þurfum ekki allt sem við kaupum; föt, bíla, húsbúnað og
mat. Sumir eru meðvitaðir, nenna að taka afstöðu og hafa áhrif á meðan aðrir
hugsa kannski ekki út í það eða finnst það fyrirhöfn. Við erum fyrirmyndir, við
berum ábyrgð og það er sinnuleysi að huga ekki að umhverfisvernd með öllum
ráðum.
Gildi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru ábyrgð, áræði, árangur. Þessi
umhyggja og virðing fyrir einstaklingum er í raun líka fyrir framtíðinni og
afkomendum okkar og jörðinni.
„Annað sem vegur þungt er að frá árinu
2014 höfum við verið að virkja starfsfólk
í vistvænum samgöngum; ganga, hjóla,
taka strætó, sem hefur skilað árangri.“