Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 61
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 59
„Ég byrjaði hjá Karitas hjúkrunar- og ráðgjafaþjónustu
sem sinnti sérhæfðri líknarmeðferð í heimahúsum. Þann
1. apríl 2018 hóf ég svo störf á líknardeildinni í Kópavogi
og tók við stöðu aðstoðardeildarstjóra í september
síðastliðnum. Áhuginn á líknarmeðferð kviknaði strax í
náminu, ég útskrifaðist árið 2002 og starfaði fyrstu árin
eftir útskrift á Heilbrigðisstofnun Suðurlands en hluti
af starfi mínu þar var að sinna líknarmeðferð. Ég fór til
Bretlands í diplómanám í hjúkrun árið 2006 og þau
valfög sem ég tók þar voru á sviði líknarhjúkrunar.“
Hvaða kosti og galla hefur hjúkrun á
líknardeild?
Hjúkrunin er mjög fjölbreytt og getur verið mjög
krefjandi en á sama tíma afar gefandi. Það fer fram
mikil fjölskylduhjúkrun á deildinni þar sem langvinn
lífsógnandi veikindi hafa ekki bara áhrif á einstaklinginn
heldur einnig fjölskylduna og þá sem standa viðkomandi
næst.
Hvaða hugmyndafræði í líknandi meðferð hafið
þið að leiðarljósi á deildinni?
Á líknardeildinni er unnið er út frá skilgreiningu WHO
þar sem segir að líknarmeðferð eigi að miða að því að
bæta lífsgæði þeirra sem glíma við lífsógnandi sjúkdóma
og fjölskyldna þeirra. Meðferðin felst í því að fyrirbyggja
og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri
þjáningu.
Hvaða bjargráð hefur þú haft í krefjandi starfi?
Styrkleiki okkar er að við vinnum í náinni teymisvinnu,
á deildinni er þverfaglegt teymi. Sterkur og samhentur
starfsmannahópur er okkar styrkur í starfi. Opin og
heiðarleg samskipti skipta miklu máli, við ræðum mikið
meðferðir og þjónustu við okkar skjólstæðinga og
finnum bestu úrræði og meðferðir fyrir hvern og einn.
Það eru haldnir teymisfundir einu sinni í viku þar sem
við förum ítarlega yfir málin og gerum áætlanir og plön
í sameiningu þar sem allt teymið kemur að. Læknar,
hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfari, sjúkraliðar og prestur.
Svo nýtum við þjónustu sálfræðinga og félagsráðgjafa
þegar þörf er á. Heildræn og þverfagleg hjúkrun er rauði
þráðurinn á deildinni og þessi nána og góða teymisvinna
er bjargráð.
Hvernig gengur þér að aðskilja vinnu og
einkalíf?
Það gengur vel. Ég reyni að taka vinnuna ekki með mér
heim. Í vor og sumar hjólaði ég mikið til og frá vinnu,
það er að mínu mati góð leið til að hreinsa hugann eftir
vaktir að hjóla í fersku lofti í Kópavogsdalnum. Það er
nauðsynlegt að geta aðskilið vinnu og einkalíf og þá
skiptir máli að eiga góða samstarfsfélaga sem hægt er að
ræða við því eðli málsins samkvæmt ræði ég ekki vinnuna
við fjölskylduna. Ég næri sjálfa mig með útiveru og
samveru með mínum nánustu. Göngur með hundinum
mínum, henni Lúnu, gefa mér orku og hún er góður
hlustandi. Ég reyni líka að passa vel upp á svefninn og
bestu útrásina fæ ég þegar ég dansa zumba.
Viðtal
Hvernig upplifir þú að vera mikið í nálægð við
deyjandi fólk og sorg aðstandenda?
Það reynir vissulega oft á en að sama skapi finnst mér
afar gefandi að eiga átt þátt í því að bæta líðan og lífsgæði
skjólstæðinga minna. Við leggjum mikið upp úr því
hjá okkur að fólki líði vel og að þörfum allra sé mætt á
þeirra forsendum. Vissulega er það krefjandi að sinna
aðstandendum sem syrgja ástvini sína en ég finn nær
undantekningarlaust að fólk er afar þakklátt og það gefur
mér mikið.
Færðu handleiðslu í starfi?
Ég hef ekki verið í formlegri handleiðslu en á deildinni
eru haldnir viðrunarfundir þar sem við fáum tækifæri til
að ræða líðan og tilfinningar tengdar starfinu og erfiðum
tilfellum. Við tölum saman og styðjum hvert annað og
það er afar dýrmætt. Oft koma upp erfiðar aðstæður sem
við ræðum þá á okkar á milli.
Hverjar eru helstu áskoranirnar á
líknardeildinni þar sem þú starfar?
Eins og víða er mönnun helsta áskorunin. Við búum
yfir miklum mannauði á deildinni og margir, bæði
hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar hafa unnið hér lengi
en það þarf að vera nýliðun og eins og staðan er núna
þurfum við fleiri hjúkrunarfræðinga í hópinn. Ég hvet
kollega mína til að íhuga að koma til okkar í Kópavoginn.
Staðurinn og umhverfið er einstakt hér við sjóinn, fallegt
útsýni, rólegt umhverfi og hér er afar gott að vinna.