Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 73
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 71
Þróun mönnunar í hjúkrun á Landspítala
Mynd 7. Fjöldi nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga á Íslandi
Mynd 8. Þróun fjölda útgefinna starfsleyfa hjúkrunarfræðinga 2008-2019
96 97 96 103 108 107 103 104 108 105 112 115 121 122
27 28 28 26 21 20 18 18 18 17 16 17 18 1921 24 24 20 12 16 14 17 20 19 24 24 24 25
66 66 72 71 69 73 71 74 77 76 80 78 86 1044
4 3 5 3 5 5 4 4 33 5 4 18
23
0
50
100
150
200
250
300
350
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Heimild Ríksendurskoðun
Heimild Embætti landslæknis og Ríkisendurskoðun
Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga
á Landspítala
Starfsvettvangur: Þegar mönnun innan hjúkrunar er rædd
er því gjarnan haldið fram að hjúkrunarfræðingar fari í
auknum mæli í störf innan Landspítala sem fela ekki í sér
beina klíníska þjónustu við sjúklinga. Þegar starfsvettvangur
hjúkrunarfræðinga á Landspítala þessi 15 ár er skoðaður
kemur í ljós að hlutdeild hjúkrunarfræðinga sem sinna
klínísku starfi hefur vaxið úr 86% árið 2005 í 88% árið 2019. Sú
umræða stenst því ekki skoðun. Einnig er oft bent á fjölgun
stjórnenda eða verkefnastjóra á kostnað klínískra starfa, en
í raun hefur þeim fækkað hlutfallslega sem bera starfsheitin
stjórnendur, verkefnastjórar eða önnur „óklínísk“ starfsheiti.
Ein ástæða þessa er mikil fækkun hjúkrunardeildarstjóra úr
109 stöðugildum árið 2006 í 68 árið 2019 eða um 38%. Eins
var heilt stjórnunarlag, sviðsstjórar hjúkrunar, lagt niður við
skipulagsbreytingar árið 2009 en þeir voru 10 talsins.
Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag: Meðaltalsstarfshlutfall
hjúkrunarfræðinga bæði í dag- og vaktavinnu fór lækkandi
á árunum 2005-2019, úr 78% árið 2005 í 73% árið 2019
sem er hlutfallsleg lækkun um 6%. Aðeins 18% (n=214)
hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu voru í 100% starfi árið 2019 og
36% (n=170) þeirra sem voru í dagvinnu. Rúmlega þriðjungur
vaktavinnumanna voru í 90% starfshlutfalli eða meira á
sama tíma og 45% dagvinnumanna. Frekari greining þarf
að fara fram á breytingum á starfshlutfalli í kjölfar styttingu
vinnuvikunnar frá árinu 2021 þar sem ólíkur fjöldi vinnustunda
og viðvera er á bakvið hvert starf.
Veikindi og fjarvera: Greining á fjarvistum hjúkrunarfræðinga
er ein leið til að varpa ljósi á stöðu mönnunar og
starfsumhverfi. Fjarvistir aðrar en veikindi s.s. orlof,
námsleyfi, hvíldartímar og fleira hafa almennt fylgt þróun
fjölda stöðugilda. Veruleg aukning hefur aftur á móti verið á
veikindafjarvistum hjúkrunarfræðinga á þessu 15 ára tímabili
og er það mikið áhyggjuefni. Þær hafa vaxið sérstaklega
mikið frá 2017, um 10% milli áranna 2018 og 2017 og 21%
milli 2018 og 2019, mest á bráðageðdeildum, bráðamóttöku
og lyflækningadeildum. Það sama á við kauplausar fjarvistir
eftir að veikindaréttur er fullnýttur, en árið 2005 var þetta
eitt stöðugildi á mánuði að meðaltali, en voru níu stöðugildi
Mynd 9. Þróun fjarvista hjúkrunarfræðinga á Landspítala niður á ástæðu fjarveru 2006-2019
Orlof Fræðsla, fundir og rannsóknirFrí tengd vinnuskyldu Veikindi Aðrar fjarvistir
( s.s. verkföll og Hekluverkefnið)
að jafnaði árið 2019. Fjarvistum vegna hlutaveikinda sem
orsökuðust af skertri starfsgetu, hefur enn fremur fjölgað og
voru að meðaltali þrjú stöðugildi á mánuði árið 2019.
Yfirvinna: Þar sem grunnmönnun deilda gerir almennt ekki
ráð fyrir að hægt sé að mæta fjarvistum vegna veikinda að
fullu og margar deildir eru undirmannaðar miðað við þá
starfsemi sem þar fer fram er yfirvinna og aukavaktir oft
helsta lausnin til að geta veitt nauðsynlega þjónustu. Breytileg
yfirvinna hjúkrunarfræðinga hefur vaxið undanfarið en að
meðaltali er rúmlega 60 stöðugildi á hverjum tíma unnin í
yfirvinnu árið 2019. Unnin og greidd yfirvinna óx um 160%
frá árinu 2010 til 2019 eða úr því að vera 2,3% samanlagðra
dagvinnu- og yfirvinnustöðugilda í að vera 4,8%. Hér er
mikilvægt að muna að á árinu 2010, í kjölfar niðurskurðar
í kjölfar fjármálakrísunnar 2008, gilti yfirvinnubann á
Landspítala nema að uppfylltum ströngum skilyrðum.
Spálíkan fyrir mönnunarþörf
hjúkrunarfræðinga
Mikilvægt er að spá fyrir um mönnunarþörf hjúkrunarfræðinga
á Landspítala til framtíðar, þar sem tekið er tillit til þátta
eins og æskilegrar nýliðunar, framboðs, starfsloka,
aldurssamsetningar, fjarvista s.s. veikinda og fæðingar- og
foreldraorlofs, hjúkrunarþyngdar og lýðfræðilegra þátta. Í
meðfylgjandi líkani fyrir nýliðunarþörf hjúkrunarfræðinga
á Landspítala 2019 er stigið skref í áttina að gerð slíks
líkans. Þar er horft til þátta eins og árlegrar fjölgunar, fjölda
hjúkrunarfræðinga sem fara á lífeyrisaldur á komandi árum,
annarra starfsloka og fæðingar- og foreldraorlofa.
Í meðfylgjandi töflu eru settar fram fjórar sviðsmyndir til
að leggja mat á þörf fyrir nýliðun hjúkrunarfræðinga á
Landspítala út frá; meðalfjölda starfandi hjúkrunarfræðinga
á árunum 2010-2019, væntri árlegri þörf fyrir nýliðun
hjúkrunarfræðinga á Landspítala og væntri árlegri innkomu
nýrra hjúkrunarfræðinga inn á íslenskan vinnumarkað.