Heilbrigt líf - 01.12.1942, Page 19
því þarft verk með grein sinni, er nú þirtist hér í tíma-
ritinu. Útlimaskekkjur og sköpulagsgallar heyra undir
sérfræðigrein hans (,,orthopædi“).
Læknirinn bendir m. a. á, hve fótlag manna sé marg-
víslegt: „Fætur eru misjafnir að lögun, sumir langir og
grannir, aðrir stuttir og gildir, og allt þar á milli. Sé nú
aðeins búin til ein vídd fyrir hverja tiltekna lengd, sér
hver maður í hendi sér, að ýmsir, og það ekki fáir, geta
aldrei fengið mátulega skó, þó að fætur þeirra séu í raun-
inni alveg eðlilega lagaðir“. En skór, sem á boðstólum
eru í verzlunum hér, eru sjaldan miðaðir við annað en
fótlengdina. Læknirinn hefir vafalaust rétt að mæla, að
eigi allfáir muni ekki geta fengið á sig hentugan skó-
fatnað.
1 góðum erlendum skóverzlunum, þar sem vandað er
til skósölu, eiga menn kost á misvíðum skóm, þótt jafn-
langir séu. Sérstakur afgreiðslumaður sinnir kaupandan-
um, sem inn kemur í búðina, aðstoðar hann við að máta
og leiðbeinir með fagþekkingu sinni. Stundum er jafnvel
skyggnt með röntgengeislum gegnum fót og skó. Geta
menn vænzt svona afgreiðslu hér á landi, þó að almennt
sé talið ábatasamt að selja skófatnað?
Það væri drengskaparbragð, ef hérlendir skókaupmenn
vildu gerast forgöngumenn á sínu sviði, m. a. með því
að gefa afgreiðslufólkinu kost á fræðslu um það, sem lýt-
ur að sköpulagi mannsfótarins, hvernig hann tekur við
líkamsþunganum, þegar á hann er stigið, og um þau vand-
ræði, sem hljótast af skófatnaði, þegar hann fer ekki vel
við fótinn. Það ætti að vera metnaður verzlananna að
hafa á boðstólum þær stærðir og skólag, sem sanngjarnt
er að sjá mönnum fyrir. Kaupandinn ætlast til, að af-
greiðslumaðurinn hafi tíma og ráðrúm til að sinna sér,
og sé þess um kominn vegna sérþekkingar sinnar að gera
sér strax grein fyrir því skólagi, sem á við fótinn.
Heilbrigt líf — 10
145