Heilbrigt líf - 01.12.1942, Side 50
legutíma sjúklinganna á kynsjúkdómadeild Landspítal-
ans, og munar það miklu, því að lekandi er oft mjög
þrálátur og langvinnur, einkum í konum. — Héraðslæknir-
inn í Hafnarfirði er svartsýnn um horfurnar í sínu héraði,
og telur einkum í hættu telpur um og yfir fermingu.
Nýir sjúklingar með syfilis — sárasótt — eru taldir 9.
Einn þeirra er útlendingur.
Berklaveiki. Hér kemur að lengsta kaflanum í bókinni,
og er það að vonum, því að ekki er gerð meiri hríð að
öðrum sjúkdómi hér á landi. Berklayfirlæknirinn birtir
sérstaka skýrslu auk þess, sem héraðslæknarnir láta getið.
Dánartölur síðustu 10 áranna, sem skýrslurnar ná yfir,
eru á þessa leið:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1930 1937 1938 1939
232 206 220 173 165 149 157 155 106 94
Berkladauðinn er minni nú, en nokkru sinni áður.
Berklayfirlæknirinn var afkastamikill á árinu, og fram-
kvæmdi ásamt aðstoðarlæknum sínum röntgenskyggningar
í 27 læknishéruðum, ýmist á heilsuverndarstöðvum eða
með ferðaröntgentækjum. Mótorskipið „Sæbjörg“ var leigt
til berklarannsókna á Austfjörðum og Vestfjörðum. Rönt-
gentækjum var komið fyrir í skipinu, og tókust með þessu
móti geislaskoðanir í 12 læknishéruðum. Af einskærri
hæversku getur berklayfirlæknirinn ekki um þá miklu
erfiðleika, sem samfara eru röntgenskoðunum í svo lítilli
fleytu sem „Sæbjörg“ er. En þeir, sem kunnugleika hafa
á skyggningum, hljóta að dást að því mikla og ósérplægna
starfi, sem hér hefir verið unnið •— og tæplega áhættu-
lausu fyrir heilsu þeirra lækna, sem að því unnu. í kaflan-
um um heilsuverndarstöðvar (þær eru á 6 stöðum) greinir
frá berklavörnum, sem eru aðalstarf stöðvanna. I Reykja-
vík voru gerðar hópskoðanir á 2068 manns — skólakenn-
urum og börnum, sjómönnum á togurum, bökurum, starfs-
176
Heilbrigt líf