Heilbrigt líf - 01.12.1942, Page 76
inn, krabbameinasýkilinn,1) berklasýkilinn og holdsveiki-
sýkilinn. Einn læknirinn, sem rak þetta trúboðsstarf af
miklu kappi, hét Max Böhm, og var forstöðumaður „nátt-
úrulækningastofnunar“. Hann bar m. a. út þá sögu, að
bæði eyrun hefðu úldnað af barni í Vínarborg af völdum
bólusetningar. Þetta og því um líkt er borið á borð í
áróðursritum og erindum bólusetningarfénda, ásamt hin-
um svæsnustu árásum á lækna og bólusetjara; og alltaf
verða einhverjir til að trúa. 1 öllum þessum ritum eru
meira eða minna augljós merki um sjúklegt sálarlíf, svo
að nærri stappar fullri geggjun stundum, og um fyllstu
fyrirlitningu á sannleikanum. Svipuðu gegnir um rit og
starfsemi flestra eða allra safnaða, sem myndazt hafa til
áróðurs fyrir meir eða minna óskynsamlegri lækninga-
hjátrú, þótt fæstar slíkar „stefnur“ muni vera jafngjör-
sneyddar öllu viti og sú, er hér hefir nokkuð verið lýst.
T óbaksglaðning
Jón prófastur Steingrímsson (1728—1791), segir svo frá Jóni
nokkrum Halldórssyni:
„Hann lagðist banalegu, var hann þá í Hvammi. Eg var sóttur
að veita honum Sakramentið. Þegar hann hafði það meðtekið, bað
hann mig' að gefa sér tóbak í nefið. Ég sagði, mér sýndist annað
væri nú nær hjá honum; lét hann þó ráða því. Að því gerðu segir
hann: „Lofaður veri nú guð, sem nú hefir látið gleðja mína sál og
líkama; nú lofi hann mér að deyja, og nú dey ég glaður. Guð
taki'við minni sálu“. Og þar með gaf hann upp andann. Undar-
legur er guð i sínum verkum“.
1) Mjög er óvíst, að hann sé nokkur til. Ætla flestir, sem um það
eru málsmetandi, að svo sé ekki. Víst er, að hann er ófundinn enn.
202
Heilbrigt líf