Heilbrigt líf - 01.12.1942, Side 85
Nýju lögin um aðstoðarlækna- í héruðum og vinnukvöð
læknakandídatct voru allmjög rædd. Menn gerðu sér vonir
um, að skipun aðstoðarlæknanna kynnu að geta orðið
héraðslæknunum til léttis, þannig að þeir ættu frekar
heimangengt en hingað til. Þó töldu sumir, að ungir lækn-
ar mundu ekki sætta sig við þau laun, sem í boði væru.
Allir voru sammála um, að vinnukvöð læknakandídata
væri þegnskylda, sem hart væri að leggja á þá eftir margra
ára dýrt og erfitt nám, enda er líklegt, að þeir muni ein-
mitt inna þjónustu þessa af hendi í tekjurýrum héruðum.
Þótti þetta örþrifaráð löggjafarvaldsins. Fundarmenn
töldu vænlegra til árangurs, að heilbrigðisstjórnin gerði
gangskör að því að bæta kjör og lífsskilyrði héraðslækn-
anna, í þá átt sem að ofan er bent á. Læknastéttin ein hefir
orðið fyrir því, að á hana er lögð þegnskylduvinna. Lækna-
félag Reykjavíkur sendi Alþingi mótmæli, er frumvarpið
var lagt þar fram, en ekki voru þau tekin til greina. Lækna-
félag Vestfjarða mótmælti og lögunum á aðalfundi sínum.
Fundurinn ræddi þann möguleika að breyta fyrirkomu-
lagi Læknafélags íslands í þá átt, að stofnuð yrðu sérfélög
lækna víðs vegar um landið, líkt og Vestfjarðalæknar hafa
gert. Þrír læknar voru kosnir í nefnd til þess að athuga
það mál — sem sé Páll Sigurðsson, Reykjavík, Árni B.
Árnason, Grenivík og Páll Kolka, Blönduósi. Þeir gerðu
að tillögu sinni, að landinu væri skipt í 7—8 svæði, og
myndi læknar félagsdeild á hverju svæði út af fyrir sig.
En svæðum sé þannig skipað, að læknar á hverju þeirra
eigi tiltölulega hægt um vik að hittast og hafa málfundi.
Hvert svæðisfélag sendi fulltrúa á læknaþing, og hafi þeir
einir atkvæðisrétt þar, auk heiðursfélaga.
Þessar tillögur voru samþykktar einum rómi. Stjórn
félagsins var falið að gera tillögur um nauðsynlegar laga-
breytingar, og gangast fyrir stofnun svæðafélaga um land
allt.
Heilbrigt lif
211