Heilbrigt líf - 01.12.1942, Side 90
neyzla menningarþjóðanna á verksmiðjusykri. Hann er ónáttúrlegt
fæði, fremur en nokkur önnur fæðutegund. Og það skal þurfa
meira en smávægilegt steinkast, til þess að telja mig ofan af
þessum skoðunum. Til þess þarf óyggjandi rök, en ég hefi ekki
orðið þeirra var í ásökunum í minn garð af hendi þeirra, er að
„Heilbrigðu Lífi“ standa né annarra.
Þá vil ég minnast nokkrum orðum á ritdóm Júlíusar Sigurjóns-
sonar, dr. med., um bókina „Sannleikurinn um hvíta sykurinn",
sem Náttúrulækningafélag Islands gaf út í fyrra. (Heilbrigt Líf,
l. , 3.—4. h.). Ritdómur þessi er mér glögg og greinileg ábending
þess, hve fjarri sumir skrifborðslærðir vísindamenn eru því að
skilja náttúrlega heilbrig-ði og þau rök, sem henni ráða. Bókin
er einmitt réttmæt og rökstudd uppreisn gegn þessum skrifborðs-
visindum, sem hirða lítið um fullkomna heilbrigði, en sökkva sér nið-
ur í sjúkdóma og sjúkdómseinkenni. Ritstjóri „Heilbrigðs Lífs“ virð-
ist vera ritdómaranum sammála og kallar mig til ábyrgðar fyrir, að
bók þessi skuli hafa komið út hér. Eg skorast ekki undan þeirri
ábyrgð, siður en svo. Og einmitt þess vegna vil ég taka „ritdóm-
inn“ til athugunar, svo að lesendur tímaritsins megi kynnast mál-
inu frá báðum hliðurn.
Bókin „Sannleikurinn um hvíta sykurinn" er til orðin sem svar
við áróðurspésa, sem sykurframleiðendur i Svíþjóð gáfu út fyrir
nokkrum árum og útbýttu ókeypis í tugþúsunda tali í því skyni
að útbreiða og auka notkun hvítasykurs þar í landi. I pésanum
var hvíti sykurinn lofaður í öllum tóntegundum, fólk hvatt til að
borða sem mest af honum, og sérstaklega var mælt með honum
handa börnum og íþróttamönnum. Þegar þess er gætt, að höfundur
bókarinnar, Are Waerland, sem er mikilsmetinn næringai'fræðingur
með mikla reynslu að baki og brautryðjandi á sviði náttúrlegra
lifnaðarhátta í Svíþjóð, er hér að andmæla ósvífnum áróðri, sem
varðar líf og heilsu heillar þjóðar, þá verður það skiljanlegt, að
hann notar sterk orð um skaðsemi hvíta Sýkursins og athæfi þeirra
manna, sem vilja auka notkun hans. En þrátt fyrir það færir hann
góð og fullgild rök fyrir hverri staðhæfingu. Rök Waerlands eru
m. a. fólgin í tilvitnunum í ummæli milli 20 og 30 annarra næringar-
fræðinga og vísindamanna, margra þeirra heimskunnra, og gefur
það bókinni sérstakt gildi, bæði í augum lærðra og leikra. Hann
sýnir fram á, hvernig sykurinn veikir viðnámsþrótt manna og or-
sakar þannig beint eða óbeint fjölda hrörnunarkvilla, sem hann
nefnii' marga með nöfnum. Auðvitað skilur enginn viti borinn les-
216
Heilbrigt líf