Heilbrigt líf - 01.12.1942, Side 106
gera heilsufarsskoðun. Börnin voru skoðuð nakin, vegin og mæld.
Ef nokkur ástæða þótti til, voru þau send til röntgenskyggningar,
en þau, sem grunsöm voru um kláða, send til húðlæknis. Ekki
reyndist kleift að ná til skoðunar öllum börnunum, sem fóru á
sveitaheimili. Ymis atvik, svo sem óvænt ferðatækifæri, svo og
skilningsskortur margra aðstandenda á nauðsyn skoðunarinnar,
munu hafa ráðið þar miklu um, enda ollu þau nýjum kvörtunum.
Af 930 börnum, sem skoðuð voru, höfðu 47 kláða, en eitt geitur og
13 kossageit. Ekkert harn fékk að fara fyrr en það skilaði vott-
orði frá húðlækni um, að það væri ekki smitandi. Börn með óþrif
í hári (74 að tölu) voru hreinsuð við skoðunina, en mættu flest
með nýja nit er þau komu á dvalarheimilin. Verður slíkt ekki
fyrirbyggt, nema hreinsa heimilið samtímis barninu eða láta það
ekki fara heim til sín aftur eftir hreinsun. Var fyrir þvi séð að
hreinsa þau strax og þau komu á dvalarheimilin. Hreinlæti barn-
anna er oftast nær spegill af hreinlæti heimilanna, og reyndist
þetta viðfangsefni á sumum barnaheimilunum argsamara en frá
verði sagt, enda bárust nefndinni allmargar kvartanir frá að-
standendum, er börnin komu heim með nit eða kláða (sjá töflu 4).
Niðurstöður skoðunarinnar voru skráðar á þar til gerð kort, en
útdráttur af kortunum sendur á dvalarheimilin til leiðbeiningar, og
skoðunarvottorð læknis afhent börnunum. Ætlast var til, að öll
börnin mættu til skoðunar um haustið og lagt ríkt á við aðstand-
endur að láta það ekki farast fyrir, en reyndin varð sú, að aðeins
60% af börnunum komu aftur til haustskoðunar (sjá töflu 4).
Skólahjúkrunarkonur í Reykjavík og læknar starfseminnar fóru i
eftirlitsferð á heimilin, en að öðru leyti var héraðslæknum falið
að líta eftir sjúkleika hjá börnunum og heilbrigði hjá starfsfólki,
nema að Silungapolli. Þar var Gunnar Cortes heimilislæknir og
í Rauðhólum var Kristbjörn Tryggvason læknir.
232
Heilbrigt líf