Heilbrigt líf - 01.12.1942, Side 117
haldið 8 bókfærða fundi. Þegar á fyrsta fundi stjórnarinnar ákvað
hún að bjóða loftvamanefnd samstarf og styrk deildarinnar, og
leita þess til skólaneíndar að fá skólahúsið til afnota sem hjálpar-
stöð, ef til loftárása kynni að koma. Þessu boði tók loftvarnanefnd
vel, og hefir hún mætt þrisvar sinnum á stjórnarfundum tii skrafs
og ráðagerða. Stjórnin tók þegar að sér fyrir nefndarinnar hönd
að sjá um líknarstarfsemi, hjúkrun og læknishjálp. Fól hún læknum
að annast það starf. Þá tókst hún á hendur að útvega fyrir milli-
göngu R.K.Í. öll hjúkrunargögn og læknisáhöld, er nota þarf, ef til
loftárásaslysa kæmi. Hefir hún þegar fengið (og hefir á takteinum)
4 hjálparsveitatöskur með umbúðum, umbúðir og lyf handa lækn-
um, 20 rauðakrossbönd handa hjálparsveitum, og 15 rúmstæði eru
væntanleg innan skamms með dýnum og teppum. 4 sjúkrabörur,
eign Slysavarnafélagsins, hafa verið tryggðar til umráða, ef með
þarf. Spjöld með merki R.K.I. hafa verið notuð í barnaskólanum
til merkis um, að húsið sé til umráða R.K.I.
Læknar hafa tryggt sér 20 manns, konur og karla, sem lært hafa
hjálp í viðlögum, er til taks verða, ef loftárás ber að höndum.
Þann 26. ágúst kölluðu læknarnir saman karlmannasveit og
fóru yfir helztu atriðin í hjálp í viðlögum og sjúkraflutningi, er til
greina koma við loftárásarslys. Reyndust þeir allvel hæfir til að
framkvæma þessi verk, ef á þyrfti að halda. Þeim var skipt í 4
sveitir og form. fyrir hverri sveit. Formenn eru þessir: Andrés
Níelsson, Ragnar Kristjánsson, Sigurður Vigfússon og Sigurður B.
Sigui'ðsson. Var hverjum manni afhent taska með nauðsynlegum
áhöldum til fyrstu hjálpar, og einkennisböndum handa hverjum
manni í sveitinni.
Hjúkrunarkona bæjarins var fengin til að vera yfir hjúkrunar-
áveit kvenna.
Stjórnin hefir haft mikinn áhuga fyrir því, að koma á nám-
skeiði i hjálp í viðlögum og hjúkrun sjúkra. I samráði við það, og
með aðstoð Slysavarnafélagsins, er von um að slikt námskeið geti
farið fram einhvern tíma i marz, ef nógir þátttakendur fást. Það,
sem aðallega hefir staðið á, er húsnæði og kennari. Nú hefir ráðizt
fram úr húsnæðisvandræðunum, en kennari slysavarnadeildanna
hefir til þessa átt svo annrikt, að hann hefir ekki komizt yfir það,
er hann þarf að starfa fyrir loftvarnanefnd Reykjavíkur, en hefir
lofað aðstoð seinna, og mun væntanlegur 19 .marz 1942. Ekki hefir
verið auðið að fá hjúkrunarkonu til kennslu í hjúkrun sjúkra.
R.K.I. hefir á þessu ári enga hjúkrunarkonu á sínum vegum og
Heilbrigt líf
243